Meira ruglið
Skrifað laugard. 3. desember 2005 - 17:39Já, ég fór í Félagsfræðiprófið í gær og gekk bara mjög vel og svo fór ég að vinna kl 6.
Eftir vinnu langaði mig að kíkja smá niður í bæ. Þannig ég bjallaði í Grétar og Guðrúnu og fóru þau með mér niður í bæ. Grétar kemur til mín og við förum að sækja Guðrúnu. Strax og við komum niður í bæ, förum við auðvitað á Café Cozy.
Þegar við komum þangað, fer ég á barinn og fæ mér einn bjór. Guðrún fer aðeins á eftir mér og fær sér bjór. Hún var svo hrædd út af því að hún er ekki komin með aldur.
Allavega, við þömbum nokkra bjóra þarna og erum bara í góðum fíling. Svo byrjar einhver gamall maður að tala við okkur og hann ákveður að bjóða mér upp á bjór, Guðrúnu upp á bjór og Grétari upp á kaffi (þar sem hann drekkur ekki). Við þyggjum það auðvitað. Eftir það hitti ég strák sem ég hitti á Nasa á Gay Pride. Hann var hress og buðum við honum að setjast við okkar borð. Hann heitir Hjalti og er geðveikt sætur og fínn strákur. 
Svo eftir allt of marga bjóra ætlum við að fara á Hlölla og fá okkur að borða. Ég fór með því hugarfari niður í bæ að fá mér 1-2 bjóra og fara svo bara heim og vakna snemma. Ég fékk mér allt of marga bjóra og var að vakna núna! Þetta er ekki hægt. Ég er svo þunnur að ég gæti dáið. Ég get ekki lært svona þunnur, ekki séns. Hvað er að mér? Er ég orðinn alkóhólisti? Get ekki fengið mér 1 bjór, heldur verð ég að drekka þangað til ég er á rassgatinu. Þetta gengur ekki.
Á Hlölla hittum við Áka vin minn og Siggu vinkonu Guðrúnar. Seinna dró Sigga okkur á Ara í Ögri. Við fórum þangað og hittum Ingvar vin okkar þar. Hann bauð mér upp á bjór og svo var einhver vinkona Guðrúnar sem bauð okkur upp á skot þannig já.. þetta kvöld var skrautlegt. Eftir smá stund fóru Grétar og Ingvar og skildu mig og Guðrúnu eftir. Ég hringdi í Grétar og þá var hann bara á Pravda. Við hittum hann þar og fórum svo bara heim.
Ég man ekkert eftir bílferðinni heim þar sem ég var orðinn svo drukkinn. Ég vaknaði bara í morgun þunnur og allur koddinn minn út í bleki. Guðrún hafði þá skrifað eitthvað aftan á hálsinn á mér og það hafði nuddast í koddann minn.
Núna sit ég bara hérna fyrir framan tölvuna og er að skrifa á þetta súrelíska blogg.
Ég er að spá í að fara að fá mér eitthvað að borða og kannski læra eitthvað smá. 
Segjum þetta gott í bili.
Lag dagsins:
Þið munið eflaust eftir gamla smellinum "Around The World". Hérna er annað lag eftir þessa snillinga.
Daft Punk - Harder, Better, Faster, Stronger

Athugasemdir (