Deila á Facebook
« Óveður | Aðalsíða | Tvítugsafmæli Valentínu »

NOVA - stærsti skemmtistaður í heimi?
Skrifað laugard. 1. desember 2007 - 02:12
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Fyrr í dag las ég: "NOVA - stærsti skemmtistaður í heimi!" þannig ég tók því sem það væri risastór nýr skemmtistaður að opna í miðbænum.

Ég fór að grennslast aðeins til um þennan nýja skemmtistað, fór á heimasíðuna þeirra en þar var bara niðurtalning til miðnættis þannig ég hélt ennþá meira að þetta væri í raun og veru nýr skemmtistaður sem ætti að opna um miðnætti.

Ég komst að því að hann væri í Lágmúla, en það fannst mér vera frekar skrítin og afskekkt staðsetning fyrir skemmtistað. Ég sagði vinum mínum frá þessum nýja skemmtistað og var planið að kíkja þangað núna í kvöld.

Sem betur fórum við ekki, þar sem þetta hefði verið allsvakaleg fýluferð! Ég fór á heimasíðuna þeirra núna, eftir að hún opnaði, og komst að því að þetta væri víst eitthvað nýtt símafyrirtæki sem er að bjóða upp á eitthvað drasl tengdu 3G, þriðju símakynslóðinni.

Lélegasta auglýsingabrella í heimi, og kemur í veg fyrir að ég versli nokkurn tímann við þetta fyrirtæki!




Athugasemdir ():