Deila á Facebook
« NOVA - stærsti skemmtistaður í heimi? | Aðalsíða | † Kristinn Veigar Sigurðsson »

Tvítugsafmæli Valentínu
Skrifað sunnud. 2. desember 2007 - 18:51
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég fór í gær í tvítugsafmæli til Valentínu, sem haldið var á Hverfisbarnum.

Grétar kom og sótti mig og skutluðum við Oddi bróðir Grétars og Agnesi kærustunni hans í eitthvað afmæli, svo fórum við á Tropical (gamla Klúbbinn), þar sem mig minnti að það ætti að vera haldið þar. Það var nú ekki rétt, þar sem staðurinn var tómur þegar við komum. Eða jú, það voru nokkrir þarna að horfa á fótbolta.

Þegar við komum út í bíl mundi ég að það var haldið á Hverfisbarnum. Við lögðum þá bara af stað þangað en á leiðinni hringdi Helgi og bað okkur um að sækja sig. Hann var á einhverju Húsasmiðjudjammi á Kringlukránni, þannig við kíktum aðeins þangað inn.

Þegar við komum inn á Kringlukránna hitti ég flest alla sem ég var að vinna með síðasta sumar í Húsasmiðjunni, þ.á.m. Óla, Gaua, Smára, Ella, Björn Þór, ofl. Þetta var fjör, en við stoppuðum nú ekki lengi, þar sem afmælið beið okkar.

Svo komumst við loks í afmælið, þ.e. ég, Grétar, Helgi, Andri og Elli. Við hittum helling af fólki sem við þekktum, heilsuðum svo upp á afmælisbarnið, gáfum henni gjöfina og settumst svo bara niður.

Ég var búinn að ákveða að drekka ekkert á meðan ég væri í prófum en ég gerði smá undanþágu þarna þar sem Valentína átti afmæli og út af því að fyrsta prófið er ekki búið. Ég var líka mjög rólegur í drykkjunni.

Eftir svolítinn tíma í afmælinu ákváðum við að kíkja aðeins á Sólon, en ég var búinn að ákveða að fara kl 2 heim og stóðst það líka.

Klukkan 5-6 í morgun var ég vakinn af pabba, þar sem ég hafði læst á eftir mér þegar ég kom heim, og hann var úti þá og ekki með lykla. Hann kom þá á gluggann hjá mér, öskraði á mig og vakti mig, þannig ég varð að fara fram úr og opna fyrir honum.

En núna er ég bara á fullu að læra fyrir prófið á morgun, en ég hef tíma alveg þangað til kl 1 á morgun, þannig það er best að nýta hann vel.




Athugasemdir ():