Deila á Facebook
« Samtök Sjálfkynhneigðra á Íslandi | Aðalsíða | Já einmitt »

Sniðugt fyrirbæri
Skrifað sunnud. 4. desember 2005 - 17:23
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Lítið að gerast upp á síðkastið. Ég er á fullu í prófum eins og margir aðrir. Maður tekur því bara rólega heima og lærir undir próf.

En allavega. Ég var að komast að geðveikum fídus á Borgarvefsjánni og er víst hægt að sjá loftmynd af stöðum. Ég fletti upp húsinu mínu en fann ekki bílinn minn þannig ég fletti bara upp vinnunni sem ég var að vinna hjá í sumar og fann bílinn minn. Auðvitað er hann lagður í tvö stæði eins og alvöru töffara sæmir!

En já, þetta er bara lítil færsla. Ég er að fara að vinna núna kl 6 og ákvað bara að láta skoðun mína í ljós á Borgarvefsjánni. Algjört snilldar apparat. Ég er ekki byrjaður að læra fyrir næsta prófið mitt, sem er Landafræði. Ég kann voða lítið í því fagi en ég ætla að fara á fullt að lesa á morgun, þar sem prófið er á þriðjudaginn.

Ég er allavega farinn að gera mig kláran fyrir vinnuna!

Lag dagsins:
Daft Punk - Aerodynamic




Athugasemdir ():