Bókastúss
Skrifað föstud. 11. janúar 2008 - 00:44Í gær fór ég með Alexíu að kaupa bækur, þar sem skólinn er víst byrjaður. Hún og Karlotta byrjuðu á því að sækja mig, svo skutluðum við Karlottu upp í Iðnskólann í Reykjavík.
Eftir það fórum við í Griffil. Þar náðum við að skipta bókum en upphæðin sem ég náði að skipta fyrir var sirka 5000 kr. Svo verslaði ég bækur fyrir 8000 kr., þannig ég þurfti að borga 3000 kr. umfram.
Það var ein bók sem mig vantaði, sem ég fann ekki í Griffli, þannig við fórum í Office1 og leituðum en hvergi fannst hún. Þá var það síðasta stoppið og var það Penninn. Ég náði þar síðasta eintakinu af bókinni en það var mjög illa farið og kostaði 2300 kr., en bókin ný kostaði 3000 kr. Konurnar voru ekki á sama máli en ég gafst ekki upp og endaði með því að ég fékk bókina á 1500 kr.
Svo eftir þetta bókastúss okkar fórum við á Asíu og fengum okkur að borða. Alexía sagði mér um daginn frá einhverri töfrasúpu sem á víst að lækna allt kvef, þannig við fórum þangað og fengum okkur hana. Hún var bara mjög góð, en þetta er núðlu- og kjúklingasúpa með helling af grænmeti út í. Svo er hægt að setja chili eða engifer, en ég mæli með chili'num!
Svo eftir þessa gómsætu súpu fórum við og fengum okkur ís í Erlu-ís. Svo fór ég bara heim. En takk æðislega, Alexía mín, fyrir hreint frábæran dag!

Athugasemdir (