Deila á Facebook
« Alfreð hættur | Aðalsíða | Föstudagurinn - pizza og bjór »

Snjóbylur 3000 - ekkert frí
Skrifað laugard. 26. janúar 2008 - 00:17
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Í morgun var snjóbylur 3000 þannig ég var nokkuð öruggur um að skólinn myndi falla niður.

Ég hringdi upp í skóla til að athuga hvort skólinn myndi falla niður út af veðri, en kerlingin sagði svo ekki vera. Ég varð þá svolítið pirraður þar sem það var nýbúin að koma tilkynning frá lögreglu um að maður ætti ekki að keyra úti nema á vel útbúnum bílum, og spurði hana hvort skólinn ætlaðist til þess að nemendur væru á svoleiðis. Þá sagði hún: "Nei, en skólinn ætlast til þess að nemendur séu snemma á ferðinni og geri viðeigandi ráðstafanir". Ég veit ekki hvað hún átti við með þessu, þar sem það var búinn að vera snjóbylur alla nóttina. Átti ég bara að vakna klukkan hálf 7 og labba?

Ég varð geðveikt pirraður og fór út að skafa af bílnum. Pabbi bauðst til þess að skutla mér, þar sem hann er á Ford F250 á risa dekkjum, en ég var svo pirraður og þrjóskur í kjölfarið þannig ég sagðist bara ætla að fara á mínum.

Það var svolítið erfitt að komast upp brekkuna heima en ég keyrði bara löturhægt og komst upp hana á endanum. Það tók samt svolítinn tíma og þurfti ég að bakka nokkrum sinnum, þar sem mér tókst að festa mig.

Ég dreif mig bara í skólann og kom hálftíma of seint. Ég fór fyrst í Sálfræði, þar sem ég var með einhvern fyrirlestur um börn og leiki, en ég fékk nú bara 6 á honum þar sem ég horfði allt of mikið á blaðið með punktunum. Svolítið stress og feimni, þar sem ég er ekki beint vanur að tala fyrir framan allan bekkinn.

En já, núna ætla ég að fara að taka mig til. Ég veit ekki alveg hvað ég mun gera í kvöld, en það kemur bara í ljós. Ég ætla bara að byrja á því að fara yfir til Grétars og fá mér bjór. Restin kemur í ljós.




Athugasemdir ():