Helgin - stormur, fyllerí, double date og bíó
Skrifað mánud. 11. febrúar 2008 - 22:29Þetta var bara ágætis helgi, ég tók því bara rólega annan daginn en var dreginn á djammið hinn daginn, og svo í bíó á "double date" í þynnkunni - eða hvað sem þetta var.
Ég var svona hálf partinn búinn að ákveða að fara í bústaðinn til strákanna, en ákvað að sleppa því vegna kvefs og peningaleysis. Mér tókst að eyða 2000 kr. yfir alla helgina, þannig ég er nokkurn veginn kominn með á lagið hvernig á að spara - eða ekki.
Á laugardaginn hringdi Óli af Kránni í mig og bauð mér í smá chill heim til Pésa vinar síns. Ég var á báðum áttum hvort ég ætti að fara, en ákvað að kíkja aðeins þar sem ég var nú hvort sem er byrjaður að sötra heima.
Eftir að ég ákvað að fara bað ég Steinunni vinkonu mína um að skutla mér, en á síðustu stundu hætti hún við að vera á bíl og datt í það. Ég í sárri neyð bið Kollu frænku mína um að skutla mér, en hún var svo yndislega góð að redda frænda sínum.
Kolla kom svo og sótti mig og tók Bollu (hundinn sinn) með sér. Ég hafði fundið flösku af Amaretto inni, ásamt Magic, og hellti mér Töfrateppi í glas. Verst var að ég fann ekki plastglas, þannig ég tók bara glerglasið með mér.
Við vorum smá stund að finna þetta, þar sem við Kolla rötum nú voða takmarkað í Laugardalnum, en við fundum þetta á endanum. Þegar við komum var Óli bara úti að reykja og labbaði á móti okkur. En takk æðislega fyrir farið, Kolla mín, bjargaðir mér eins og alltaf.
Þegar inn var komið sátu vinir hans Óla inni, hlustuðu á einhverja tónlist, spjölluðu saman og sötruðu bjór. Ég viðurkenni alveg að ég hafi verið svolítið feiminn fyrst, en eftir nokkra bjóra hvarf feimnin alveg.
Eftir mikla drykkju hjá Pésa ákváðum við að skella okkur niður í bæ. Óli hringdi á stóran taxa og hann kom stuttu síðar og skutlaði okkur niður í bæ.
Áður en við fórum niður í bæ vorum við búnir að ákveða að byrja á English Pub, en ég hafði aldrei áður komið þangað inn.
Um leið og ég kom inn hitti ég Margréti, fyrrverandi kærustuna mína, en hún var með einhverjum vinum sínum. Við spjölluðum heillengi saman og mikið var gaman að sjá hana aftur.
Svo hitti ég Betu, Siggu, Gumma og Andra - allt aðal djamm lið Kráarinnar mætt á staðinn. Æðislegt lið.
Þarna um kvöldið hafði ég beðið Óla um að láta mig vita ef hann færi eitthvert annað, en um leið og ég kom af klósettinu var hann horfinn - og svaraði heldur ekki símanum.
Ég ákvað þá bara að kíkja á Sólon þangað til Óli svaraði símanum, en hann svaraði ekkert fyrr en mun seinna um kvöldið, þannig ég hékk bara á Sólon.
Ég hitti samt æðislegt fólk þarna (þ.á.m. Helga, Andra og Alex) og skemmti mér konunglega. Mér tókst svo að þröngva mér upp á Ellen og Klöru, vinkonur mínar, en ég kynntist Ellen á sama tíma og ég hitti Karlottu fyrst (mánudaginn 11. júní 2007), en Klöru er ég búinn að þekkja síðan í grunnskóla. Þær eru samt báðar æði.
En eftir að Sólon lokaði ætlaði ég að rölta yfir á REX, þar sem Óli hafði síðast verið þar, en þeir voru löngu búnir að loka. Ég hitti þá Guggu allt í einu og við röltum saman á Amsterdam. Það var frekar ótrúlegt en við þurftum ekki að borga neitt og vorum við líka síðust til að mega fara inn, þar sem hann lokaði og læsti hurðinni eftir að við vorum komin inn.
Inni hitti ég Gulla og Hörð, en eftir að lokaði skelltum við okkur bara á Pizza King. Svo reyndum við að redda okkur fari heim, en það var ekki séns, þannig ég prófaði að senda Kollu frænku aftur sms og spurði hvort hún væri vakandi, og auðvitað var hún vakandi og kom hún og sótti okkur.
Þegar hún kom voru Maja og Sissi með henni, þannig við tróðum okkur 7 í einn lítinn Yaris. Ótrúlegt en það tókst nú bara helvíti vel.

Á sunnudaginn vaknaði ég ógeðslega þunnur eftir 6 tíma svefn, en mér leið svo illa að ég varð að fara að sofa aftur, og sofnaði sem betur fer aftur til 6.
Maja hringdi í mig og bað mig um að koma að gera eitthvað með sér og Sissa og var ég að sjálfsögðu til í það. Þau ætluðu fyrst í 8 bíó en það var allt uppselt, þannig ég stakk upp á 10 bíó, og ákváðum við að skella okkur.
Það er ekki venjan að Maja hringi í mig og biðji mig um að gera eitthvað með sér OG Sissa, þannig það hlaut að búa eitthvað að baki - og það var einmitt málið. Vinkona Maju, sem býr úti á landi, var að koma í bæinn og með í bíó, en það vildi svo til að ég þekkti þessa stelpu líka - og það meira að segja svolítið vel. Þetta var sem sagt hálfpartinn double date, en samt ekki. Maja, skammast'ín!
Þegar kom að myndavalinu voru ekki margar myndir í boði, þar sem þau voru búin að sjá allt, en við ákváðum á endanum að fara á P.S. I Love You, sem var bara mjög hjartnæm, sæt og góð. Það var samt bilaðslega heitt í salnum og var ég með ógeðslegan hausverk eftir myndina.
Svo í dag mánudaginn fór ég bara í skólann, og svo síðan ég kom heim er ég bara búinn að vera að læra. Ég er nefnilega að fara í lokapróf úr lærdómsöld í íslensku, og svo er ég að fara í lokapróf úr lotu 1 í Þroskasálfræði á miðvikudaginn. Nóg að gera!
Ég ætla samt núna að halda áfram að læra. Segjum þetta ágætt í bili.

Gulli og ég á Amsterdam

Athugasemdir (