Dagurinn í gær
Skrifað laugard. 22. október 2005 - 19:08Gærdagurinn var hreint út sagt ömurlegur! Ég byrjaði á því að fara í skólann frá 8-11, svo fór ég með vinum mínum, Grétari og Eygló, í kringluna að skoða og versla og svo á Nings. Svo fór ég að vinna kl 6.
Kom heim kl ~12 úr vinnunni og sá að danski frændi minn og tveir danskir vinir hans, sem eru farnir aftur til Danmerkur núna, voru í heimsókn hjá okkur. Það fyndna var það að hann var að drekka þarna með vinum sínum, mömmu minni, pabba mínum og Jóa frænda mínum, og hann er bara 17 ára!
Allavega, ég skellti mér í sturtu og gerði mig kláran fyrir djammið. Eftir það sat ég hjá þeim í nokkra klukkutíma og við spjölluðum, hlóum og drukkum saman.
Eftir það ákváðum við að fara í bæinn. Um leið og við komum í bæinn, ákváðum við að reyna að komast inn á Gauk á Stöng, þar sem það er nú 18 ára aldurstakmark þangað inn og þeir voru allir 17. Eftir að þeir komust ekki þar inn, hættu þeir að reyna, fóru á Hlölla og fóru bara heim.
Ég var eftir einn niðri í bæ. Byrjaði að fara á Gaukinn og kíkja á stemmninguna þar. Hún var ekki mikil þannig ég ákvað að fara á Glaumbar. Ekkert að gerast þar. Þannig ég fór á Opus og hitti nokkra kunningja mína þar, þ.á.m. Óla linsu.
Eftir smá stund á Opus, hringdi Bjögga vinkona mín í mig og spurði mig hvar ég væri. Hún bað mig um að koma á Hressó og dró ég Óla með mér þangað.
Á Hressó hitti ég gamla starfsfélaga mína sem voru að vinna með mér hjá Póstinum þegar ég var að vinna þar sem bílstjóri, fyrir sirka ári síðan. Eftir það hitti ég Bjöggu. Hún var með dúndrandi hausverk eins og ég, og ákvað bara að fara heim stuttu eftir að ég kom.
Eftir það fórum við Óli aftur á Opus í smá stund og svo fór hann heim. Eftir það, fór ég einn á Glaumbar og var þar það sem eftir var kvöldsins.
Ég sit þarna sallarólegur við barinn á Glaumbar og er að drekka minn bjór í rólegheitunum, þegar einhver gaur kemur og stendur við hlið mér á barnum og er alltaf að slá svona létt í mig og spyrja: "Ertu ekki hress?" og eitthvað. Eftir nokkra slætti, gefst ég upp og segi við hann: "Ekki slá mig aftur!". Þá hættir hann því, hallar sér upp að mér, tekur bjórinn minn og tekur vænan sopa af honum. Ég segi við kauða: "Hvað í andskotanum ertu að gera?". Hann biðst fyrirgefningar og ákveður að gefa mér Jägermeister skot. Ég þáði það og svo byrjar hann að segja mér að standa upp. Eftir nokkrar tilraunir um að koma mér á lappir, segir hann: "Ef þú stendur ekki upp, fer ég með feitri kellingu heim í kvöld". Hehe, þetta var hress gaur.
Eftir þetta, labba ég að strætóskýlinu til að taka leigubíl heim. Þar hitti ég Hönnu frænku mína og við deilum leigubíl.
Núna sit ég hérna og er að blogga einhverja helvítis vitleysu. Maturinn fer að koma á borðið og enn er óvíst hvað maður ætlar að gera í kvöld. En eitt er víst, ég læt ykkur vita.

Athugasemdir (