Ich sprache keine Deutsch!
Skrifað miðvikud. 7. desember 2005 - 14:52Ich muss studieren heute Deutsch. Sem þýðir: "Ég verð að læra í dag þýsku".
En já, skemmtilegt nokk. Þýska, enska og íslenska eftir og þá er ég búinn í prófunum og kominn í jólafrí. Þetta fer allt að styttast.
Ég gerði nú ekki margt í gær nema það að læra ekki neitt. Tók mér alveg frí í gær frá lærdómi og var bara í tölvunni allan daginn. Svo um kvöldið fór ég með Grétari á rúntinn og svo fórum við bara heim. Svei mér gaman.
Ég vaknaði kl 1 áðan og er ennþá að reyna að fá mig til að slökkva á tölvunni og fara að læra fyrir þýskuprófið. Það er ekkert auðvelt að læra heima hjá sér þar sem freistingarnar eru of margar. Þess vegna hef ég sl. daga farið alltaf upp á Þjóðarbókhlöðuna (Landsbókasafn Íslands) og lært þar, en Guðrún og Beta voru að koma þaðan og sögðu að það væri allt troðfullt. Ég nenni ekki að fara í einhverja fýluferð þangað, þannig ég held ég læri bara heima, þó það sé erfitt að byrja.
Það er verið að reyna að fá mig til að fara í einhverja sumarbústaðaferð með kórnum. Hver í andskotanum fer í sumarbústað í miðjum prófum og um há vetur?
Grétar er að reyna að telja mér trú um að læra bara á föstudeginum og laugardeginum og svo myndum við fara um laugardagskvöldið og koma svo aftur um sunnudagsmorgun. Þá verð ég ekki bara ónýtur heldur sný ég einnig sólahringnum við. Held það sé ekkert sniðugt. En mig langar að kíkja en ég er að fara í svo erfitt íslenskupróf á mánudeginum. Íslenskuprófið er úr Snorra Eddu og Málssögu og er ég ekki bestur í heimi í þessum bókum, þannig ég þarf að læra mikið.
En núna ætla ég að fá mér að borða og drekka og kíkja svo í bækurnar.

Athugasemdir (