Deila á Facebook
« (eigin)Hagsmunasamtökin STEF | Aðalsíða | Kominn tími til að gera eitthvað fyrir þig! »

Helgin í grófum dráttum
Skrifað þriðjud. 4. mars 2008 - 12:15
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Það er búið að vera brjálað að gera hjá manni þannig bloggið hefur tafist aðeins. Hins vegar fór öll helgin bara í vinnu á Kránni. Ég mætti 5 báða dagana og var til 4-5 um nóttina báða dagana, þannig það var lítið hægt að gera en að vinna og sofa.

Um kvöldið báða dagana (5-11) var ég bara einn á barnum í kvöldmatnum, afgreiðandi bommurnar fyrir matar- og leikhúsgestina. Svo eftir 11 var ég yfir vaktinni eða vaktstjóri, en var að sjálfsögðu sjálfskipaður á barnum. Það var voða lítið að gera á föstudeginum en svo troðfylltist allt á laugardeginum, maður hafði varla undan.

En bæði kvöldin gengu mjög vel, fyrir utan eitt atvik. Það var eitthvað fífl sem tók sig til og rispaði spoilerinn á bílnum mínum þannig nú er mikið af málningunni flögnuð af. Ég hringdi náttúrulega strax í lögregluna, fékk hana á staðinn og lagði inn skýrslu.

Einnig talaði ég við Securitas og bað þá um að athuga myndavélarnar hjá sér, en þær myndir sem fundust voru lagðar inn sem sönnunargögn hjá lögreglu. Þetta eru víst bara myndir af einhverjum krökkum í kringum bílinn minn, en bíllinn minn er því miður ekki í mynd.

Andskotans fífl sem gera svona. Taka þetta lið og lemja það duglega, þar sem eignatjón er ekkert grín. Þessi aðili hefði nú frekar bara átt að leggja hendur á mig í stað þess að leggja hendur á dauða hluti, sem eru manni virkilega kærir.

En já, annars er bara brjálað að gera þessa dagana. Skólaverkefnin og prófin byrjuð að hlaðast upp. Ég er t.d. að fara í lokapróf í Eðlisfræði á fimmtudaginn, þarf að skila heimildaritgerð í Sögu fyrir næstu viku og svo þarf ég að lesa 100 bls í Svartfugli fyrir hvern íslenskutíma. Ég fer að bresta út af álagi, meika ekki svona geðveiki.




Athugasemdir ():