Góður árangur
Skrifað fimmtud. 8. desember 2005 - 12:34Jæja, ég er þá búinn í þýskuprófinu!
Þetta gekk bara mjög vel. Betur en ég bjóst við.
Ég lærði líka mjög mikið undir þetta próf. Ég lærði alla óákveðnu greinina, alla ákveðnu greinina, "haben" og "sein" í bæði eintölu og fleirtölu og fór með þetta reiprennandi.
Þegar ég fékk prófið í hendurnar fór ég aftast og skrifaði allt upp svo ég myndi ekki gleyma því út af stressi eða einhverju, og fór svo leikandi í gegnum prófið. Þetta var gaman.
Eftir prófið fór ég upp í Bónus Video og fékk lánaða Land of the Dead. Hún fær góða dóma á IMDB þannig hún hlýtur að vera ágæt. Ég sá Dawn of the Dead og fannst hún bara mjög góð, þannig ég vona það sama með hina. Þó ég haldi nú ekki að þetta sé beint framhald af hinni myndinni, þó nafnið og "innihaldið" séu keimlík.
En já, ég fer upp á Þjóðarbókhlöðu með Grétari, Guðrúnu og Möggu kl 3. Guðrún og Magga eru reyndar farnar en ég og Grétar förum þegar Grétar er búinn í prófinu sem hann fór í kl 1. Ætla nú ekki að læra neitt mikið fyrir þetta enskupróf, þar sem þetta er enska og ég er góður í henni. Læra bara þessi flóknu orð og segja það svo gott
Við verðum heldur ekkert lengi þar sem Grétar þarf að mæta í annað próf kl ~7.
Ég tók voða skemmtilegt video frá hlöðunni í gær og getið þið séð það hér. Hehe, rosa gaman hjá okkur að læra.
En já, ég ætla að fara að fá mér að borða og svona.

Athugasemdir (