Deila á Facebook
« Kominn tími til að gera eitthvað fyrir þig! | Aðalsíða | Helgarbloggið - tvenn afmæli »

Eðlisfræðipróf og framundan
Skrifað fimmtud. 6. mars 2008 - 18:51
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég var í Eðlisfræðiprófi í morgun og verð ég nú bara að segja að mér hafi bara gengið ágætlega. Ég var mest allan gærdaginn að læra fyrir það uppi á Þjóðarbókhlöðu. Ég skellti mér svo í dans og fór svo beint heim að læra meira.

Kennarinn minn ætlar að leyfa öllum þeim sem ná 5 eða hærra á báðum hlutaprófunum að sleppa við lokaprófið, og ætla ég sko að stefna að því! Ég er í nógu erfiðum áföngum fyrir og veitti ekkert af því að læra betur fyrir þau próf.

Gummi var núna rétt áðan að hringja í mig og bjóða mér í bíó á myndina Semi-Pro núna kl 8, þannig ég ætla að taka mér smá pásu frá lærdómnum og skella mér. Ég er nefnilega að fara í próf á morgun úr 100 bls úr Svartfugli.

En núna um helgina er ég víst að fara í tvenn afmæli, eitt er hjá Ingvari á föstudeginum og svo hitt hjá Ellen vinkonu minni á laugardeginum. Nóg að gera hjá manni, það fer ekki á milli mála.

En ertu svangur/svöng?





Athugasemdir ():