Deila á Facebook
« Eðlisfræðipróf og framundan | Aðalsíða | Kompás í kvöld »

Helgarbloggið - tvenn afmæli
Skrifað þriðjud. 11. mars 2008 - 00:18
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Helgin hjá mér var bara hin ágætasta, en hún fór öll í afmælisboð.

Á föstudaginn var mér boðið í afmæli til Ingvars á Kringlukránni, en strákarnir voru búnir að plana fyrst að hittast heima hjá Grétari og spila póker.

Mér finnst mjög gaman í póker en ekkert allt of þegar þeir ákveða að spila upp á peninga og ég á ekki pening. Ég ákvað því að sleppa að vera með og spara peningana, en ég kíkti samt sem áður yfir til þeirra og heilsaði upp á þá.

Eftir klukkutíma dvöl hjá strákunum og nokkrum borðtennisleikjum síðar, þar sem ég tapaði öllu, ákvað ég að drífa mig í afmælið. Strákarnir voru samt ekki á sama máli, þar sem áhuginn virtist liggja einungis mín megin.

Kolfinna frænka mín var svo góð að skutla mér í afmælið hans Ingvars. Hún er líka alltaf búin að redda mér þegar mig vantar far og er ég mjög þakklátur fyrir það. Takk æðislega fyrir allt, elskan!

Þegar ég kom í afmælið voru afar fáir þar. Eftir að Grétar kom vorum við mestallan tímann á dansgolfinu frammi, þar sem Stuðbandalagið frá Borgarnesi var að spila. Við bjuggum okkur til smá leik og snérum okkur í hring þegar viðlagið í lögunum kom. Bara gaman!

Eftir nokkurra stunda dvöl ákváðum við að fara niður í bæ og var Jón svo góður að sækja mig, Grétar, Lilju og Ómar. Takk kærlega fyrir það, Jón minn!

Við héldum bara niður í bæ, þar sem við byrjuðum á Sólon og enduðum á Glaumbar. Eftir að við fórum á Glaumbar lagðist yfir mig gífurleg þreyta þannig ég var við það að sofna standandi á dansgólfinu.

Fyrr um kvöldið var ég búinn að biðja Sollu, sem er að vinna með mér á Kránni, um að hringja í mig í lok kvöldsins, þar sem hún var að vinna, og skutlaði hún okkur Grétari heim í lok kvöldsins. Takk æðislega fyrir það, Solla!

Á laugardaginn var ég búinn að ákveða að fara í afmælið hjá Ellen, Ingu Birnu og Katrínu, en það byrjaði kl 10 og var haldið á Glaumbar.

Nokkrum dögum áður var ég búinn að biðja Svenna um að koma með mér í afmælið, en þar sem hann er Epic Fail Guy gat hann ekki reddað sér til mín né niður í bæ og þar sem hann er hundleiðinlegur edrú vildi ég ekki að hann væri edrú á bíl, þannig hálftíma fyrir afmælið þurfti ég að sækja hann, þannig við komum meira en einum tíma of seint í afmælið. Ég var fyrst svolítið stressaður/pirraður en það er bara ekki hægt að vera fúll út í þennan meistara til lengdar.

Eftir að ég var búinn að ná í hann fórum við bara heim, ég fór í sturtu og gerði mig til, svo fengum við okkur að drekka. Ég hringdi í Maju frænku og athugaði hvað hún og Sissi væru að gera og bauð hún mér í kjölfari af því far. Takk æðislega, elskurnar!

Þegar við komum á Glaumbar hittum við Karlottu, vinkonur hennar og Ellen. Ég byrjaði að sjálfsögðu á því að heilsa upp á Karlottu og knúsa Ellen, en svo skelltum við Svenni okkur á barinn og fengum okkur að drekka.

Eftir svolitla stund þarna hitti ég Kristínu Tinnu og var hún alveg ólm í að dansa, og þar sem það var ógeðslega góð tónlist þarna áður en DJ'inn byrjaði og út af því að mér finnst svo ógeðslega gaman að dansa, ákvað ég að skella mér á dansgólfið með henni, vinkonu hennar og Svenna.

Kvöldið leið hratt, enda er sagt að þegar það er gaman líður tíminn hratt. Eftir að almenningi var hleypt inn á Glaumbar ákvað ég að fara yfir á Sólon, en Karlotta og Svenni voru búin að reyna að fá mig til að koma yfir á Sólon löngu áður, en ég var að fíla mig svo mikið þarna á Glaumbar að mig langaði að vera lengur.

Ég, Svenni, Ellen og Katrín röltum yfir á Sólon, en ég lenti í einhverjum smá deilum við einn dyravörðinn þarna, en það leystist sem betur fer og ég endaði með því að biðja hann innilegrar afsökunar. Honum fannst það vera mikils vert af mér og sé ég núna eftir á hvað ég gerði rangt. Einnig bað ég Rabba á barnum afsökunar en ég var víst með einhverja stæla við hann fyrir löngu síðan.

Eftir að ég kom inn fór ég bara beint á barinn. Svo sá ég Karlottu, Kristínu, ofl. sitja í sófanum og ákvað að setjast hjá þeim með bjórinn minn. Stuttu eftir það byrjuðu hópslagsmál dauðans við hliðina á okkur og virtist vera að dyraverðirnir réðu lítið við þau, en svo eftir svolitla stund kom löggan og slagsmálin stoppuðu.

Kvöldið leið og ég hitti Ragnar Smára, frænda minn frá Grundarfirði, sem ég hef ekki hitt lengi lengi. Það var mjög gaman að hitta hann og var einhver kunningi hans sem bauð okkur upp á Tequila.

En djöfull er ég orðinn þreyttur á sumum lögunum þarna á Sólon. Það er alveg með ólíkindum hvað maður dettur alveg úr öllu stuði þegar maður heyrir eldgömul lög þarna, sem er búið að spila hverja einustu helgi í ár eða meira.

Það er ekki spurning, það vantar annan stað eins og Pravda var. Þó fólkið hafi verið og sé mun skemmtilegra á Sólon þá gat maður alltaf farið yfir á Pravda þegar maður var kominn með ógeð á sömu gömlu lögunum á Sólon. Þegar maður vildi DANSA, ekki bara dilla sér.

En í lok kvöldsins byrjaði eitthvað vesen á milli ónefndra aðila og varð ég að sjálfsögðu að skipta mér að því og reyna að stoppa vesenið, en út frá því spratt meira vesen og í kjölfari af því er ég með sprungna vör og illt í nefinu, en ég veit ekki hvort ég sé nefbrotinn fyrir víst eða ekki. Ég vil samt þakka Unni og Grétari K. kærlega fyrir sína aðstoð og Grétari fyrir að ná í mig þarna um morguninn eftir að hann var búinn að vinna.

Segjum þetta ágætt í bili.




Athugasemdir ():