Páskafrí
Skrifað miðvikud. 19. mars 2008 - 04:10Það er afar fátt sem er búið að gerast í mínu lífi þessa dagana. Alltaf það sama bara, skólinn, vinnan og djamm. Þetta er orðið allt of einhæft, maður þarf að fara að gera eitthvað annað.
Síðasta föstudag byrjaði ég í páskafrí í skólanum, sem var alveg yndislega mikill léttir, þar sem ég þarf einmitt á fríi að halda til að ná að núllstilla mig í skólanum.
Um helgina síðustu var ég svo bara að vinna á barnum. Ég er oftast að þjónast úti í sal, en þar sem Davíð, sem er oftast á barnum, var úti í New York var ég í staðinn fyrir hann. Það er líka fínt að breyta til.
Ég var eitthvað kvefaður og slappur um síðustu helgi að ég bað um að fá að fara fyrr heim á föstudeginum, en vann alla vaktina á laugardeginum. Ég hafði bara vítamínpakka (A, B, C, D, E) og verkjatöflur með mér og hélt mér góðum.
Helgin var tiltölulega fljót að líða og strax er vikan hálfnuð. Ég verð að fara að drífa mig í því að opna bækur svo mér takist ætlunarverk mitt - að núllstilla mig.
En núna á fimmtudag er ég að fara á árshátíð Kringlukráarinnar, en eins og í fyrra verður farið út fyrir bæjarmörkin og gist eina nótt. Síðast var farið á Hótel Örk í Hveragerði, en nú í þetta sinn verður farið suður á Hvolsvöll, þar sem gist verður á Hótel Hvolsvelli.

Það eru mjög margir af Kránni búnir að skrá sig og mun þetta verða hið mesta fjör. Þetta er allt frábært fólk og er ég mest ánægður með að Óli og Gummi láti sjá sig, en þeir voru úti á Spáni þegar árshátíðin var í fyrra. Og að sjálfsögðu vona ég að Beta komi, þar sem það er ekkert djamm án Betu!
En þessi árshátíð verður sko ekkert slor, þar sem í boði verður gisting, fjögurra rétta máltíð, skemmtiatriði og svo sveitaball um nóttina. Djöfull verður þetta gaman, og ekki er verra að Grétar ætli að koma með.
En svo er maður að heyra að SkjárEinn verði líka með árshátíð þarna á sama tíma og við, þannig það er bara fínt upp á það að ef við fáum leið á hvoru öðru.
Svo er gamla settið víst að reyna að draga mann vestur á snjósleða og eitthvað. Ef ég fer þangað dreg ég örugglega Grétar með mér. En ætli ég segi þetta ekki bara gott í bili.

Hótel Hvolsvöllur

Athugasemdir (