Deila á Facebook
« Páskafrí | Aðalsíða | Restin af páskafríinu »

Frá og með miðvikudeginum
Skrifað laugard. 22. mars 2008 - 22:58
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég ætla aðeins að skrifa um það sem er búið að gerast frá og með miðvikudeginum.

Á miðvikudaginn skrapp ég í heimsókn til Jökuls, þar sem Jökull, Solla og Jóhanna voru. Við slöppuðum bara af og drukkum þangað til við ákváðum að kíkja niður í bæ.

Þegar við komum niður í bæ kíktum við á Sólon, þar sem við hittum Gumma, Helga, Palla, ofl. Palli var svo ógeðslega fullur að hann sullaði niður drykknum mínum en þar sem ég átti engan pening bað ég Helga um að kaupa nýjan handa mér, sem hann líka gerði. Takk fyrir það, Helgi minn!

Eftir smá dvöl á Sólon ákvað Gummi að kíkja á Hverfis, þar sem Steini var, og fórum við allir þangað. Við stoppuðum ekki lengi þar og fórum því næst á Apótekið, en það var allt of löng biðröð þannig við fórum bara aftur á Sólon.

Seinna um kvöldið hitti ég Alexöndru, en stuttu seinna ákváðu allir að fara heim, en ég, fávitinn, ákvað að vera lengur, þar sem Alex sagði mér að vera lengur og sagði að far heim myndi reddast. Ég trúði því og afþakkaði því farið með strákunum og ákvað að vera lengur.

Ég og Alex skemmtum okkur konunglega og drukkum og dönsuðum. Seinna um kvöldið kom einhver strákur og reyndi við Alex. Ég sá að hún þekkti hann en hún fór alltaf frá honum til mín.

Aðeins seinna skrapp ég á klósettið og kom svo aftur til baka. Ég fann hana ekki aftur og spurði vinkonu hennar hvar hún væri og sagði hún þá að hún væri í horninu með Dóra (strákurinn sem var alltaf að reyna við hana). Ég fór þangað og sá hana þá vera að kyssa hann, en þá gerði ég mér grein fyrir því að ég þekkti engan þarna inni og að allir vinir mínir væru farnir heim, og að ég þyrfti eflaust að labba heim í lok kvöldsins.

Ég byrjaði að labba heim þarna, en þar sem ég vissi að Dofri ætti heima þarna rétt hjá hringdi ég í hann og bað hann um að hleypa mér inn. Ég labbaði í góðar 20 mínútur í miklum kulda og roki þangað til ég kom heim til hans.

Það er svo skrítið að manni finnst maður alltaf vera að missa af einhverju í bænum, en þegar allt kemur til alls, er maður ekki að missa af neinu. Næst ætla ég ekki að vera vitlaus og fylgja bara vinunum heim ef þeir fara heim og ég er ekki með neitt annað far. Ég nenni sko ekki að lenda aftur í þessu.

Ekki halda að ég sé eitthvað leiður/pirraður yfir því að Alex hafi verið að kyssa þennan gaur, þar sem mér er alveg sama um það - nema hún hefði getað valið annan tíma fyrir það. Ég er bara aðallega vonsvikinn út af því að hún hálf partinn beilaði á mér vitandi að vinir mínir væru farnir og ég væri einn þarna.

En væli væli væl, áfram með smjörið!

Á fimmtudaginn vaknaði ég grútþunnur. Mér tókst að skrapa saman nægum pening fyrir leigubíl þarna um morguninn svo ég kæmist heim, en ég fór að sjálfsögðu að sofa aftur.

Þarna um kvöldið var ég á leiðinni á langþráða árshátíð hjá Kringlukránni, en planið var að mæta á Hvolsvöll, gista í eina nótt og djamma ógeðslega mikið.

Til að byrja með átti ég að mæta kl 4 á Olís Rauðavatni til þess að sækja áfengi hjá Sophusi, sem átti að vera á árshátíðinni hjá Kringlukránni. Ég vaknaði hins vegar 20 mínútum yfir 4 og þá var bíllinn rafmagnslaus. Æðislegt!

Ég hringdi í Sophus og sagði honum að ég myndi ekki geta náð í þetta, þannig hann sagði mér bara að sleppa þessu.

Planið var að leggja af stað kl hálf 6 á Hvolsvöll, sem stóðst líka ágætlega bara. Við Grétar fórum og sóttum Sollu og Frikka, vin hennar, og lögðum af stað.

Þegar við komum á Hvolsvöll fórum við bara beint og náðum í lykilinn að herberginu okkar. Við Grétar vorum saman í herbergi og Solla og Frikki voru saman í herbergi. Þetta var ágætis komutími hjá okkur, þar sem við rétt náðum að gera okkur til áður en maturinn byrjaði.

Maturinn var algjört lostæti! Þetta var fjögurra rétta og í forrétt var m.a. nauta carpaccio, í aðalrétt var MIKIÐ lambakjöt og svo í eftirrétt var súkkulaðidrulla í bolla.

Eftir matinn voru skemmtiatriði, happdrætti ofl. Ég vann m.a.s. risastóra freyðivínsflösku í happdrætinni, en til þess að geta unnið varð maður bæði að fá númerið sem valið var og leika eitthvað sem allir gátu giskað á. Ég fékk að leika norðurljós - sem var MJÖG erfitt! En ég náði að bjarga mér með því að gera áttavita og benda í norður ásamt því að benda á ljósið fyrir ofan mig, þannig ég fékk freyðivínið.

Eftir allt saman byrjaði ballið, þar sem húsbandið hélt uppi frábæru balli. Við byrjuðum samt í rólegu partýi þar sem við sungum og drukkum. Svo var kíkt á ballið, sem var mjög svo gaman, nema það að þetta frábæra húsband var einn maður með hljómborð. Hahaha, en ég skemmti mér samt sem áður konunglega.

Eftir að ballið hætti, kl 3, var haldið í herbergispartý. Við byrjuðum í smá partýi hjá okkur Grétari, en fórum svo til Birgittu og Hrannar, þar sem tekið var upp gítarinn og sungið hástöfum. Svo að lokum var farið til Helenu og Elwiru, þar sem allt endaði. Eftir það voru allir orðnir svo þreyttir og fullir að þeir ákváðu að fara bara að sofa.

Ég skemmti mér konunglega og var þetta mjög vel heppnuð árshátíð! Ég vil bara þakka kærlega fyrir mig og þakka öllum fyrir frábæra samveru! En ég var ekki nógu ánægður með að aðal partýdýr Kringlukráarinnar skildi ekki láta sjá sig, en það er að sjálfsögðu hún Beta beibí. En hún lofaði víst í staðinn svaka afmælispartýi hjá sér. Gaman gaman!

Á föstudaginn vöknuðum við Grétar kl sirka 1 og fórum að taka til. Það voru allir farnir, þar sem það átti að skila herbergjunum kl hálf 1. Við skiluðum svo herberginu okkar og fórum bara heim.

Seinna um kvöldið ákváðum við strákarnir bara að taka því rólega og spiluðum tölvuleiki. Ég, Grétar, Jökull og Helgi fórum til Grétars og spiluðum WarCraft 3 og Counter-Strike. Ég verð nú bara að segja að það var mjög gaman. Bærinn var opinn en við slepptum honum, pöntuðum okkur bara pizzu í staðinn og spiluðum tölvuleiki. Takk fyrir kvöldið, strákar!

Núna í kvöld, laugardaginn 22. mars, er óákveðið hvað ég geri. Mér sýnist allt benda til að ég fari á djammið með Sigga, sem býr á Neskaupstað og er með mér í bílaklúbbnum Live2Cruize. Hann er á leiðinni til mín, þannig ég kveð í bili.

Myndirnar af árshátíðinni eru svo á næsta leyti. Ég þarf að finna þá sem voru með myndavélar og fá þá til að setja þær á netið. Segjum þetta bara ágætt í bili.




Athugasemdir ():