Deila á Facebook
« Frá og með miðvikudeginum | Aðalsíða | McDonalds »

Restin af páskafríinu
Skrifað þriðjud. 25. mars 2008 - 00:14
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Þetta páskafrí er búið að vera svolítið frábrugðið öðrum, þar sem ég er gjörsamlega búinn að liggja í áfenginu yfir þessa páska, sem getur ekki verið hollt, hvorki fyrir líkama né sál.

Á laugardaginn talaði Siggi, félagi minn úr Live2Cruize, við mig og spurði mig hvað væri planið fyrir kvöldið. Ég sagði honum bara að ég væri ekki búinn að ákveða það. Þá sagðist hann vera á leiðinni í bæinn (hann býr á Neskaupstað en var í Sandgerði hjá vini sínum). Ég bauð honum bara að sjálfsögðu til mín.

Þegar hann kom byrjuðum við bara að drekka hjá mér, en þá kom Grétar yfir og spjallaði við okkur. Þegar líða fór á kvöldið ákváðum við Siggi að skella okkur í bæinn, þannig Grétar kvaddi.

Ég hringdi í nokkra og sendi sms til að athuga stöðuna á fólki, hvort það væri í glasi og hvort það væri til í að skutla tveimur rottum í bæinn. Þegar ég var búinn að prófa flest alla í símaskránni minni prófaði ég að hringja í Leif, sem er að vinna með mér, og var hann til í að skutla okkur niður í bæ. Takk fyrir það, Leifur!

Eftir að við Siggi komum niður í bæ fórum við á Café París, þar sem hann langaði til þess að hitta Möggu. Við stoppuðum smá stund þar, sátum, drukkum bjór og spjölluðum saman.

Eftir svolitla stund kom vinur hans Sigga, hann Óskar, til okkar. Hann bauð mér upp á bjór og Flaming Sambuca, sem ég varð mjög hress af. En svo komu Karlotta og Hildur vinkona hennar. Svo eftir svolitla stund fórum við yfir á Sólon, þar sem djammið hélt áfram.

Það var nú bara opið til 3 á Sólon en við létum það nú ekki skemma djammið hjá okkur. Rétt áður en það lokaði sendi Solla vinkona mín mér sms og sagðist vera á rúntinum þannig ef mig vantaði far gæti ég bara hringt í hana. Ég þakkaði gott boð og hringdi svo í hana þegar Sólon lokaði. Þarna voru Siggi og Óskar farnir.

Um leið og ég byrja að labba úti hitti ég Óla, sem er að vinna með mér á Kránni. Hann vantaði far heim þannig ég sagði honum að hringja í Sollu og spyrja hvort það væri pláss fyrir hann. Hann gerði það og það var líka pláss fyrir hann.

Á meðan við vorum að bíða eftir Sollu og Þórdísi fór ég í sjómann við einhvern vin hans Óla, en það endaði nánast með slagsmálum, en ég hugsa að við hefðum farið að slást ef Solla og Þórdís hefðu ekki komið akkúrat á þessu augnabliki. Heppinn!

Svo skutluðum við bara Óla heim, kíktum svo aðeins á strákana vera að spila og fórum svo bara heim. Takk æðislega fyrir farið, Þórdís, og takk æðislega, Solla, fyrir að láta mig vita að þið væruð að rúnta.

Á sunnudaginn, páskadaginn sjálfan, vaknaði ég tiltölulega seint og ákvað að gera eitthvað skemmtilegt. Ég talaði við Karlottu og bauð henni í mat. Ég hafði kvöldið áður fundið eitthvað nautafillé inni í frysti, þannig ég tók það frosið út og lét það þiðna, þannig það var alveg þiðið þarna.

Ég byrjaði á því að skera fillé stykkið í nokkrar sneiðar, tók svo svartan pipar og kryddaði í fat, tók svo sneiðarnar og baðaði brúnirnar á sneiðunum í pipar, þannig þetta leit mjög vel út. Svo kom Karlotta og ég henti þessu á pönnu og svo fórum við að borða. Karlotta var svo góð að kaupa piparsósu og pik-nik kartöflur á leiðinni, þannig við vorum með eitthvað meðlæti, ekki bara kjöt.

Þetta heppnaðist bara rosalega vel og var kjötið algjört lostæti, þannig við vorum bæði rosa ánægð með útkomuna.

Eftir mat gekk ég bara frá í eldhúsinu og svo fórum við að horfa á spólur frá því ég var lítill.

Svo seinna um kvöldið komu Grétar, Jökull, Helgi, Jói, Rakel vinkona Karlottu, Solla, Þórdís, Eygló, Kata og Anna. Við settumst bara í stofunni og Helgi, Jói og Jökull spiluðu á gítar til skiptis og við hin sungum með. Rosalega gaman.

Eftir góða kvöldstund ákváðum við að fara niður í bæ. Við skiptum niður í stráka- og stelpubíla, þar sem Rakel var bílstjóri stelpnanna og Jói var bílstjóri strákanna. Svo fórum við bara beint á Sólon en Jói og Jökull voru svo svangir að þeir fóru á Subway strax eftir að þeir voru búnir að skutla okkur.

Þetta kvöld var bara mjög fínt og endaði bara í eftirpartýi heima hjá mér, þar sem Grétar, Jökull, Solla og Óli létu sjá sig. Svo hitti ég Lottu, sem ég var með fyrir mörgum árum, og Halldóru vinkonu hennar og bauð þeim í eftirpartý líka. Satt að segja var þetta eftirpartý frekar dautt þar sem við vorum öll að niðurlotum komin, en það endaði með að allir fóru og við Jökull enduðum á trúnó.

En þetta var æðislegt páskafrí, þannig ég vil bara þakka öllum fyrir það sem ég var með og hitti. Ég ætla að fara að segja þetta gott, en nú er bara að drífa sig í að vera duglegur að læra því skólinn byrjar aftur á miðvikudag.




Athugasemdir ():