Helgin, kókþamb, ræktin og rafmagnsleysi
Skrifað þriðjud. 1. apríl 2008 - 00:01Nú er 1. apríl genginn í garð - dagur lyga og pretta. En hvað um það, síðasta helgi var bara vinnuhelgi, þannig ég gerði fátt annað en að vinna.
Á föstudaginn fór ég að vinna og þar sem Davíð er kominn aftur frá Las Vegas var ég úti í sal að þjóna, en ekki á barnum. Seinna um kvöldið kom starfsfólk NTC og fékk það hliðarsalinn út af fyrir sig. Ég var svo settur í það að dæla bjór í liðið þar, sem var bara ágætt.
Svo um nóttina þegar ballið byrjaði var svo lítið að gera, og þar sem ég var búinn að vera síðan um daginn, fékk ég að fara heim. Ég hafði ekki sofið nóg nóttina áður og voru orkudrykkir ekki að virka, þannig það var mjög notalegt að fá að fara heim. Ég fór bara einn laugarveg og svo beint heim í bælið. Strákarnir buðu mér að koma að spila en ég meikaði það bara engan veginn - var dauðþreyttur!
Á laugardaginn svaf ég til 15:40, vaknaði og byrjaði bara strax að taka mig til fyrir vinnuna. Svo mætti ég og var bara aftur úti í sal, sem var enn og aftur ágætt.
Um nóttina var ég svo á barnum, eins og venjulega á næturvöktunum, en það var meira að gera en á föstudeginum, þannig það var ekkert inni í myndinni að fá að fara fyrr heim. Einnig vantaði líka aðal manneskjuna í salnum.
Eftir vakt hringdi Jóhanna Rut frænka mín í mig og bað mig um að skutla sér og vinkonu sinni heim. Fyrir það lofaði hún mér að vera driverinn minn næstu helgi, sem gæti komið að góðum notum.
Helgin gekk annars bara eins og í sögu og var mjög fínt að sleppa djammi eina helgi, þó maður fái alltaf á tilfinninguna eins og maður hafi verið að missa af einhverju. En djammpásan er ekki langlíf þar sem maður er víst strax búinn að plana næstu helgi, en þá erum við Gummi búnir að plana að fara á DJ Sammy á Broadway.
Í gær sunnudaginn svaf ég til 9 um kvöldið. Ég hafði litla von um að sofna þarna um nóttina, en ég náði loksins að sofna kl 5 um nóttina.
Ég vaknaði svo í dag mánudaginn rétt fyrir skóla kl 8:10, tók mig til og henti mér upp í skóla. Fyrsti tíminn var Náttúrufræði, þar sem við lærðum um lotukerfið og hvernig á að flokka frumefni í aðalhvel og undirhvel. Satt að segja flókið, en ég skil þetta nokkurn veginn.
Smá útúrdúr...
T.d. ef við tökum Na, sem er Natrín og er með sætistöluna 11 og er þ.a.l. með 11 róteindir. Það er ss. í 3. lotu með 3 aðalhvel og er það því sett upp svona: 1s(2)2s(2)p(4)3s(2)p(1)
Klár, ekki satt?
Ég þarf svo aðeins að stúdera þessa orkuskörun betur, þar sem þetta er reiknað öðruvísi ef aðalhvelin eru 4 eða fleiri. En allavega, nóg um þetta.
Eftir þetta fór ég í íslenskutíma, en á síðasta föstudag voru ég og tveir aðrir að vinna hópverkefni úr bókinni Svartfugl, en þar sem ritarinn okkar mætti ekki í þennan tíma í dag fengum við hinir 0 fyrir verkefnið. Engin miskunn sýnd, bara harkan sex. Bölvaður asni samt að mæta ekki!
Eftir tíma skellti ég mér svo í ræktina. Ég var ekki alveg að nenna því vegna þreytu, en ákvað að skella mér, þar sem ég veit að ég þarf að vera duglegur restina af önninni ef ég ætla að ná þessum íþróttaáfanga. Ég mætti samt í fjallgönguna á þemadögunum og fékk 5 íþróttamætingar þá og svo stefni ég á það að mæta í Elliðarárdalsgönguna þann 18. apríl og fæ ég þá líka 5 íþróttamætingar, þannig ef við reiknum að ég þurfi 24 mætingar til þess að ná áfanganum þarf ég að mæta 6x í viðbót. ( 24 - 5 - 5 - 2 (mætingin í dag) ) / 2 = 6. Ekkert mál fyrir Gaua Pál!
Um daginn ákvað ég að hætta að drekka kók en það er satt að segja ekki eins auðvelt og ég hélt. Ég hef áður hætt að drekka kók/pepsi og endaði það bara með því að ég skipti aftur yfir, þannig ef ég hætti að drekka kók byrjaði ég að drekka pepsi viku seinna. Þetta mun takast... á endanum!
En talandi um að hætta fíkn, nú um daginn hætti ég að naga puttana, en ég hef gert það frá því ég var lítill krakki. Ég hætti að naga neglurnar fyrir nokkrum árum fyrir Huldu fyrrverandi mína en hafði aldrei náð að hætta að naga skinnið á puttunum, þangað til núna um daginn. Ég stökk út í apótek, keypti handáburð og ætlar mér að takast þetta.
En í ræktinni í dag fór rafmagnið allt í einu, þannig öll tæki og allt sem tengdist rafmagni var óvirkt. Ég var sem betur fer búinn á hlaupabrettinu áður en rafmagnið fór, en versta var að sturturnar virkuðu ekki eftir að rafmagnið fór. Ég gerði mér þá bara smá ferð heim og stökk í sturtu. En rafmagnið var af í öllum Grafarvoginum þannig ég gat ekki eldað neitt heima, þannig ég skrapp bara upp á Hlölla á Höfðanum.
Jæja, förum að segja þetta gott. Þetta var fínasta helgi og fínasta vikubyrjun. Vonandi má segja það sama um það sem eftir er af vikunni. Hafið það gott. Þangað til næst!

Athugasemdir (