Deila á Facebook
« Can you beat 97? | Aðalsíða | Unnur Birna er Miss World 2005 »

Eitt próf eftir!
Skrifað laugard. 10. desember 2005 - 00:54
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Jú jú, ég var í enskuprófi í dag. Ég lærði ágætlega fyrir það. Mér gekk bara mjög vél en ég þarf að fá 7 eða hærra til að ná áfanganum. Ég fékk nefnilega svo lélega kennaraeinkunn. En ég held ég nái því alveg.

Ég vaknaði kl 8 í morgun og fór með bílinn minn í viðgerð. Bara basic check sem ég þarf ekki að hafa áhyggjur af. Þegar ég sótti bílinn var "basic check ljósið" ennþá kveikt en það var út af því að Gulli (viðgerðarmaðurinn) gat ekki slökkt það. Ég redda því.

Svo í dag tók ég því bara rólega en núna er ég í partýi hjá Jökli. Já, góður að blogga í partýi? Allavega, ég er hérna með Guggu, Grétari, Jökli og Betu. Rosa fjör. Svo er Tara á leiðinni. Vííííí.

Ég er farinn að drekka meiri bjór. Ég þarf samt að taka því rólega á laugardeginum og sunnudeginum þar sem ég er að fara í síðasta prófið mitt á mánudaginn og er það auðvitað íslenska. Ég á eftir að lesa alla Snorra Eddu og alla Málssögu. Úff, það verður svei mér gaman. Ég verð víst að sleppa sumarbústaðnum með kórnum núna um helgina þar sem ég verð að læra.

Ég er að spá í því að bæta við svona myndahluta á síðuna, þar sem ég set myndir inn af djamminu og svona. Spurning, spurning.

En ég er allavega farinn að drekka meiri bjór... *alki*alki*




Athugasemdir ():