Deila á Facebook
« DJ Sammy í kvöld | Aðalsíða | Klókur krakki »

Föstudagurinn - DJ Sammy
Skrifað laugard. 5. apríl 2008 - 19:19
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Í gærkvöldi fórum við strákarnir á DJ Sammy á Broadway. Við mættum fyrst heim til Gumma að drekka, en þeir sem mættu til Gumma voru: Helgi, Ægir, Jón, Steini, Rafn, Gaui bro, Kiddi, Palli, María, Linda, Lilja og tveir aðrir sem ég man ekki hvað heita.

Þetta var mjög fínt heima hjá Gumma, mikið drukkið og hlustað á góða tónlist. Seinna um kvöldið voru ég, Gummi, Rafn, Ægir, Gaui bro og Kiddi að fara á DJ Sammy, og fórum við í kringum eitt leytið, þar sem húsið opnaði víst ekki fyrr en þá. Hafliði, vinur hans Ægis, kom og skutlaði mér, Ægi, og Rafni, og Steini skutlaði Gumma, Gaua bro og Kidda.

Þegar við komum á Broadway var Ægir með eitthvað sull sem við þurftum að klára, þannig við stóðum bara úti á meðan við kláruðum það. Svo komu hinir og við fórum inn saman.

Þegar inn var komið fór ég bara með frakkann minn í fatageymsluna og hitti þar Siggu, sem ég hitti á Akureyri þegar ég og Helgi tókum þátt í söngkeppninni. Svo eftir það fór ég bara niður og beint á barinn, og keypti dýrasta bjór sem ég veit um - á 750 kr!

Ég vil bara koma þessu að, ég borgaði 750 kr. fyrir 0,5L af Carlsberg í dós, sem kostar 209 kr. í ríkinu. Þetta er sem sagt meira en 350% álagning, sem er bara rugl. Einnig borgaði ég 800 kr. fyrir sterkt í gos. Mér fannst það bara fair þangað til ég sá glösin sem þeir setja þetta í. Þetta eru 18 cl glös, sem sagt maður fær 15 cl minna magn en tíðkast, og á svipuðu verði og maður hefði fengið 33 cl á flestum börum.

Einn barþjónninn þarna gerði sig m.a.s. það kaldan og fyllti ekki sjússamælinn alveg (vantaði 1-2 mm upp að topp), þannig ég sá það og bað hann um að hafa þetta rétt. Ég bað hann bara um að hella smá extra út í, en þá vildi hann bara gera nýjan drykk. Hahaha, spáið í ruglinu. Ég kaupi mér aldrei aftur eitthvað á Broadway, nema kannski á áramótunum.

Eftir þetta fór hópurinn að sundrast smám saman og endaði ég að sjálfsögðu einn. Ég hitti samt helling af fínu fólki, sem ég gat verið með eftir að strákarnir hurfu bara allt í einu og svöruðu ekki símunum sínum.

En hvað varðar þennan DJ Sammy þá finnst mér helvíti lélegt að það sé planað að hann byrji að spila kl 2 en svo byrjar hann ekki fyrr en kl hálf 4! Svo var allt búið um 5 leytið. Þetta var fín tónlist sem hann var með, þannig hann hefði alveg hafa mátt byrja fyrr eða verið lengur.

Eftir að Broadway lokaði fór ég bara og sótti frakkann minn og hringdi í Sollu, þar sem hún var svo góð að sækja mig eftir á og skutlaði mér heim. Ég veit í alvöru ekki hvernig ég hefði komist heim ef hún hefði ekki boðist til að skutla mér. Milljón þakkir, elskan.



En núna í kvöld er ég að fara í afmæli til Óla á Kránna, þar sem þetta verður bara smá partý heima hjá honum, en svo kíkir maður örugglega niður í bæ eftir það. Afmælispartý Techno.is er víst í kvöld á NASA, en enginn nema ég af strákunum er spenntur fyrir því.

Þetta kemur allt í ljós. Segjum þetta ágætt í bili.




Athugasemdir ():