Bloggleysi
Skrifað föstud. 11. apríl 2008 - 16:39Þið verðið að afsaka bloggleysið, það er búið að vera brjálað að gera hjá mér í skólanum. Við Björgvin vorum t.d. í 5 tíma í gær að búa til rannsóknaskýrslu í Sálfræði. Svo er risastórt próf í Náttúrufræði á næsta leyti, þannig þetta er allt ein stór geðveiki.
Síðasta helgi endaði bara með svaðalegu fyllerí. Við byrjuðum heima hjá Gumma, fórum svo á Sólon og að lokum á NASA, þar sem afmælispartý Techno.is var haldið. Solla var svo góð og hélt mér á floti allt kvöldið, en svo var Svenni svo dýrlegur að skutla okkur heim í lok kvöldsins.
Í gær, á fimmtudaginn, var bjórkvöld á Tropical og kíkti ég með Sollu, Þórdísi og Ásdísi. Mér fannst ég ekki vera neitt sérlega fullur, en það breyttist þegar ég kom heim. Þá var ég rosalega fullur, þannig ég fór bara að sofa.
Í morgun vaknaði ég svo ógeðslega þunnur og fór í skólann. Djöfull var ég ekki að meika daginn, þar sem mér var mjög óglatt, með dúndrandi hausverk og leið eins og ég væri nýkominn úr viku sjóferð. En svona er þynnkan.
Seinna í dag fór ég svo í 10 km Elliðarárdalsgöngu með Björgvini, Ellen og Katrínu. Þessi ganga er á hverri önn og fær maður 5 íþróttamætingar fyrir, þannig núna er ég kominn með 18 mætingar af 22, sem þýðir að ég þarf bara að mæta tvisvar í viðbót í ræktina. Eftir það skipti ég eflaust yfir í Veggsport, þar sem ég á árskort þar.
En núna um helgina verð ég bara að vinna, þannig það verður held ég voða lítið að gerast. Ég fæ samt hugsanlega að hætta kl 11 á morgun (laugardaginn), þannig spurning hvort maður geri eitthvað þá, en það kemur bara í ljós.
Segjum þetta ágætt í bili.

Athugasemdir (