Deila á Facebook
« Bloggleysi | Aðalsíða | Mamma í flugvélinni »

Helgin - hálf vinnuhelgi
Skrifað miðvikud. 16. apríl 2008 - 00:39
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Helgin var bara fín hjá mér. Ég bæði vann og djammaði, þótt ótrúlegt sé.

Fyrir helgi hafði yfirmaður minn haft samband við mig deginum áður og spurt hvort ég vildi hætta kl 11 um kvöld báða dagana og þáði ég það að sjálfsögðu. Ástæðan var sú að það voru nýir starfsmenn að byrja og þeir þurftu á þjálfun að halda, þannig mér var boðið þetta.

Stuttu síðar hringir hann aftur og segir mér að það séu veikindi hjá starfsmönnum og því verði ég að taka alla vaktina á föstudeginum, sem mér fannst ekki vera neitt mál. Meiri vinna, meiri peningur. En í staðinn fékk ég að mæta kl 6 í staðinn fyrir 5.

Sem sagt á föstudaginn var ég bara að vinna allan daginn og alla nóttina. Það voru tveir veikir á næturvaktinni, þ.á.m. vaktstjórinn, og því var ég vaktstjórinn, sem var bara fínt. Við vorum örlítið lengur í lok kvöldsins að taka til en venjulega, þar sem það vantaði manneskjuna sem er vön í salnum. En á endanum gekk þetta allt upp.

Eftir vinnu fór ég niður í bæ að sækja Sollu og Ingvar, en Ingvar var nýbúinn að vera kýldur í andlitið á Prikinu. Málið var að einhver vinur dyravarðarins sagði Ingvari að fara út en Ingvar neitaði og sagði að hann væri ekki dyravörður, og þá kýldi gaurinn hann. Löggan kom svo stuttu seinna og handtók gaurinn. Ég skutlaði Ingvari svo bara niður á slysó og heim eftir það.

Fyrir þennan greiða lofaði hann mér 10.000 kr. um næstu mánaðarmót. Það verður gaman að sjá hvort hann efni það loforð þar sem mig vantar alveg nýjar Levi's gallabuxur.

Á laugardaginn mætti ég svo bara aftur í vinnuna og vann til 11. Þar sem vaktstjórinn var kominn og hinn starfsmaðurinn sem var veikur, fékk ég að hætta fyrr.

Ég skutlaði bara Sollu heim, fór svo heim í sturtu og skipti um föt. Síðan rölti ég yfir til Grétars með nokkra bjóra, en um leið og ég kom, komu Solla og Þórdís. Grétar og Jökull voru bara þarna niðri í tölvunni, en stelpurnar voru ekki sáttar við það, og sögðu þeim því að slökkva á tölvunum og koma í drykkjuleiki - sem við og gerðum.

Við settumst inn í íbúð í sófann þar og byrjuðum í Buffalo, sem er frábær leikur. Eftir smá af honum ákváðum við að prófa einhvern leik sem Þórdís stakk upp á, en hann gekk út á það að tengja einhvern hlut við tölur. Í hvert skipti sem maður klikkaði á hlutnum átti maður að drekka. Bara skemmtilegur leikur!

Eftir mikla drykkju ákváðum við að fara niður í bæ. Grétar skutlaði þá mér, Sollu og Þórdísi niður á Sólon, en Grétar og Jökull fóru bara heim.

Ég hitti mjög marga þarna um kvöldið, þ.á.m. Gumma Jónss, Gumma kærasta Ellu systir, Halla vin hans, Karlottu, Ómar, Kamil og Svenna. Mér brá svolítið við að sjá Svenna, þar sem hann er í major djammpásu. Einnig var mjög gaman að hitta Kamil, þar sem það eru ár og aldir síðan ég talaði síðast við hann.

Eftir að Sólon lokaði ákváðum við að halda áfram að djamma og kíktum því á Glaumbar. Ég þekkti dyravörðinn og hleypti hann okkur því inn. Inni á Glaumbar hitti ég m.a. Gulla og Binna, en þeir eru alltaf hressir þegar maður hittir þá.

Þrátt fyrir mikla ölvun man ég eftir því að Gummi Jónss hringdi í mig og bauð mér far með sér heim, sem ég kann virkilega að meta. Takk æðislega fyrir boðið, Gummi minn.

Í þann mund sem Glaumbar var að loka ákváðum við bara að drífa okkur heim, og þar sem Óli var að vinna á Kránni um nóttina ákváðum við að prófa að hringja í hann. Hann var svo góður að sækja okkur, en ég gat ekki endað kvöldið án þess að fá mér Hlölla á vagninum. Nammi namm!

Á sunnudaginn vaknaði ég svo heima hjá Þórdísi ógeðslega þunnur! Ég, Solla og Þórdís höfðum farið heim til Þórdísar og sofnað þar, en við vöknuðum klukkan sirka 2 og fórum þá strax á fætur.

Við vorum svo ógeðslega þunn að við ákváðum að byrja á því að fara og fá okkur að borða á Kringlukránni. Eftir það ákváðum við að leigja okkur hrollvekjuna 1408, en ásamt henni ætluðum við að leigja Saw III, þar sem Solla hafði ekki séð hana, en leigðum óvart Saw II. Það fyndna er að við föttuðum það ekki fyrr en degi seinna. Verst var að 1408 var mjög rispuð og ekki önnur til, og því horfðum við bara á Saw II (sem við héldum að væri 3).

Eftir mikið vídjógláp ákváðum við að skella okkur í 8 bíó á myndina 21, en það var því miður uppselt á hana. Vinkonur Þórdísar keyptu hins vegar miða fyrir hana og því fór hún, en við Solla ákváðum þá bara að fara á Kringlukránna og fara svo bara í bíó kl 10.

Það var mikið spáð í því hvaða mynd við ætluðum á, en það sem var svona efst á baugi var: 21, The Eye, Superhero Movie, Vantage Point, en Leifur á Kránni stakk upp á því að við færum á The Ruins - sem við gerðum líka. Ég hringdi og pantaði 2 miða í Laugarásbíói og ekki var verra að þetta var POWER sýning.

Í heildina var myndin bara góð, en hægt er að lesa nánar um myndina hér.

Á mánudaginn fór ég svo bara í skólann. Ég fór og lét athuga með útleiðslu rafmagns á þjófavörninni í bílnum mínum, en viðkomandi var ekki með réttu tólin og bað mig því um að koma aftur á morgun.

Á þriðjudaginn fór ég aftur með bílinn, en þá var hann ekki með rétta mælitækið og bað mig því aftur um að koma á morgun.

Eftir skóla fór ég svo bara upp á bókasafn, þar sem ég hitti krakka með mér í Sálfræði, og fórum við að vinna í fyrirlestri sem við eigum að skila í dag (miðvikudaginn). Eftir að bókasafnið lokaði og við ekki búin, ákváðum við að fara á American Style og klára þetta, og vorum við svo heppin að lenda á heitum reit (fríu interneti) þar. Við kláruðum svo fyrirlesturinn og kvöddumst.

En jæja, vikan hálfnuð og eru langir dagar framundan. Segjum þetta ágætt í bili.




Athugasemdir ():