Deila á Facebook
« Mamma í flugvélinni | Aðalsíða | Dagurinn í dag - rafmagnsleysið leyst? »

Helgin - frítt inn á Sálarball!
Skrifað mánud. 21. apríl 2008 - 13:55
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Það er nú meira djamm standið alltaf hreint á manni. Ég ætlaði nú bara að vera edrú á föstudeginum, en það var fljótt að breytast eftir að ég fékk tilboð um frítt áfengi.

Á fimmtudaginn fór ég bara í skólann, en þar sem viku áður á fimmtudeginum hafði ég drukkið svo svakalega og var svo rosalega þunnur allan föstudaginn, ákvað ég að sleppa því að drekka. Við strákarnir kíktum bara í keilu, sem endaði með því að Palli vann og ég var neðstur, og svo fórum við bara á trúbbakvöld á Sólon, þar sem Einar Ágúst var að spila.

Á föstudaginn bað ég Óla, sem er að vinna með mér á Kránni, um að skipta um kerti í bílnum fyrir mig, og var hann svo góður að gera það fyrir mig. Ætli hann hafi ekki verið í svona klukkutíma að því, en mér finnst það ekki vera neinn tími, þar sem flestir hefðu eflaust þurft að taka heddið af til þess að komast að kertaboxunum í bílnum mínum. Algjör snillingur og þakka ég honum bara kærlega fyrir að gera þetta fyrir mig!

Eyðslan í bílnum hafði farið allt upp í 24 lítra í meðaleyðslu á hundraðið, en á leiðinni heim datt eyðslan niður í 11! Svo núna er hún í svona 14-16, en það fer alveg eftir því hvernig ég keyri. Hann eyðir samt mest í lausaganginum, en núna í gær fór hann alveg upp í 20 á meðan hann var í lausagangi. En það lagast vonandi á næstu dögum. Þarf bara að taka þjófavörnina úr sambandi í bílnum, þar sem það er hún sem er að leiða svona rosalegu út, sem gerir það að verkum að ég þarf að starta bílnum 4-5x á dag í 10 mínútur í senn.

En eftir að ég var búinn hjá Óla fór ég bara heim í sturtu og gerði mig kláran. Svo þegar ég var klár komu Solla og Þórdís og sóttu mig og við fórum heim til Ingvars, þar sem við drukkum og fórum í drykkjuleiki. Þeir sem voru þar: Ég, Ingvar, Solla, Þórdís, Ásdís og Darri.

Ingvar leigir út eitt lítið herbergi hjá pólskum hjónum og satt að segja var ég oft á tíðum orðinn mjög smeykur við þessa gömlu konu þegar hún kom og öskraði á okkur fyrir að vera með hávaða.

Ég var hálf partinn búinn að ákveða að drekka ekki þarna um kvöldið, en þar sem Solla hringdi bara í mig um daginn og spurði: "Hvaða bjór finnst þér bestur?" fékk ég voða litlu um það ráðið.

Það var mjög gaman í partýinu. Ég kenndi þeim Buffalo og fórum við m.a. í hann. Einnig var mjög heitt umræðuefni hversu brenndur ég væri á hálsinum, en ég hafði farið í ljós fyrr um daginn og þar sem við erum að tala um glænýjar perur brenndist ég með fyrrnefndum afleiðingum. Það reddaðist nú svo bara með smá púðri.

Eftir "partýið" fórum við niður í bæ á Tunglið, sem er gamli Gaukur á Stöng, en Agga var svo góð að redda okkur þangað inn. Satt að segja finnst mér þetta vera fínn staður, fyrir utan liðið sem var þarna inni, en þetta virtust bara vera grunnskólakrakkar og dópistar. Hins vegar er músíkin stórfín og staðurinn virkilega flottur. Ég mun eflaust sækja þennan stað oftar í framtíðinni eftir þessi fínu fyrstu kynni.

En þetta djamm endaði að lokum á Hverfisbarnum, þar sem ég þambaði vatn eins og enginn væri morgundagurinn. Eftir að við fórum út af Hverfis var Gugga svo góð að bjóða mér í heimsókn og rölti ég alla leið til hennar, eða á Bræðraborgarstíg.

Á laugardaginn vaknaði ég mjög hress, en ég var nákvæmlega ekkert þunnur. Þökk sé eflaust vatnsdrykkjunni fyrr um kvöldið. Við fórum bara á fætur og settumst fram í stofu, þar sem ég hitti Þórunni sambýliskonu Guggu og mjög skrítinn kött, en hann var sífellt með opinn munninn og var óður í að naga allar snúrur sem urðu í vegi fyrir honum.

Eftir góða afslöppun og hleðslu á batteríum skutluðu Gugga og Þórunn mér heim, en þær voru m.a.s. það hressar að þær ákváðu að skella sér í sund. Mig langaði hins vegar að komast heim, þar sem ég var búinn að lofa Sollu þynnkumat.

Ég fór þá bara og náði í Sollu og við skelltum okkur á Kringlukránna, þar sem við fengum okkur að borða. Svo skutlaði ég henni bara heim, þar sem hún var að fara að vinna þarna um kvöldið.

Gummi bauð mér þarna um kvöldið að koma með í hálfgert innflutningspartý til Skúla, sem er að vinna með honum á Sólon, en ég vildi að Gummi spyrði Skúla hvort ég mætti koma, þar sem annað væri asnalegt. Hann ætlaði að gera það en hringdi svo aldrei aftur, þannig ég skellti mér bara í afslappelsi heima hjá Jökli, þar sem við vorum bara þrír; Ég, Jökull og Helgi.

Það var bara mjög fínt, en helstu umræðurnar voru hversu sniðugt væri ef Helgi, Jökull og Gummi myndu stofna sitt eigið fyrirtæki í framtíðinni, þar sem það væri svo gjörsamlega borðliggjandi. Helgi ætlar jú að læra smiðinn, Jökull rafvirkjann og Gummi píparann, þannig jú, þetta er nokkuð borðliggjandi. En gaman verður að sjá hvernig fer.

Seinna um kvöldið ákváðum við að fara niður í bæ, en þar sem Helgi var á leiðinni á Sálarball í HK Digranesi ákváðum við Jökull að fara með. Ég vildi fyrst ekki fara þar sem ég átti ekki nægan pening, en Helgi og Jökull buðust til að borga fyrir mig, þannig ég ákvað að skella mér.

Þegar við komumst þangað, þökk sé Sollu kærustu Jökuls, fórum við bara beint inn en vorum stoppaðir í hurðinni. Við Helgi vorum svo heppnir að þekkja Stebba í hurðinni, sem endaði með því að við komumst frítt inn. Heppnir þeir Helgi og Jökull að þurfa ekki að borga fyrir sig og mig.

Þegar við komum inn var Sálin í pásu, en þeir byrjuðu svo að spila stuttu seinna. Við fórum bara á barinn og svo á dansgólfið og dönsuðum og sungum eins og fávitar. Þetta var rosalega gaman.

Eftir að ballið var búið byrjaði eitthvað helvítis drama, sem endaði með því að Helgi fór bara heim, en hann var búinn að lofa að vera með okkur um kvöldið, en þar sem við vorum allir sammála um það að þetta væri hápunktur kvöldsins ákváðum við bara að leyfa honum að fara í góðu.

Á þessum tímapunkti var ég orðinn mjög fullur og hringdi í Kollu frænku mína, sem var svo góð að koma og sækja okkur. Eftir að hún sagðist vera á leiðinni datt Jökli hins vegar það snjallræði í hug að labba að American Style í Kópavogi, þar sem þá væri styttra fyrir hana að keyra, en þegar við vorum hálfnaðir var hún komin í HK húsið og við ekki þar. Það leiddi að svolitlum pirring, þar sem þau þurftu að keyra að 11-11 til þess að sækja okkur.

Við komum svo við á Hlöllavagninum, þar sem ég var að sálast úr hungri. Svo kvöddum við bara Kollu, Maju og Guðna, en við ákváðum bara að rölta upp á Sólon. Það var algjör óþarfi fyrir þau að skutla okkur þangað, þar sem þetta var nú bara rétt fyrir ofan.

Við áttum jú ágætis kvöldstund, en það er alveg rétt hjá Jökli að þetta var hápunktur kvöldsins og að við hefðum alveg getað bara farið heim eftir Sálarballið. En það var eitthvað sem fékk mig til að langa að halda áfram að djamma - sem ég líka gerði.

En þetta ágæta kvöld endaði með því að Gummi fór og fékk sér að borða á Pizza Pronto, en á meðan ég var að bíða eftir Gumma kom einhver gaur og rakst svakalega í mig. Ekki nóg með það að hann rakst í mig, heldur ýtti hann mér bara eins og jarðýta. Ég sagði honum þá bara að róa sig og byrjaði þá einhver vinur hans að rífa kjaft við mig, en það endaði með því að gaurinn sem hafði "óvart" ýtt mér, róaði hann niður.

Rosalega er neikvætt í dag að róa sig og liggur við að maður fái högg í andlitið við það eitt að biðja einhvern um að róa sig.

En stuttu eftir að Gummi keypti sér pizzu kom mamma og skutlaði okkur heim. Djöfull var notalegt að koma heim og sofa, þó sælan hafi verið stutt þar sem ég fékk allt of lítinn svefn.

Á sunnudaginn vaknaði ég svo kl 2 og hjálpaði mömmu að tæma greinarnar úr garðinum, þar sem þær höfðu verið klipptar á laugardaginn. Ég og Halli frændi (bróðir mömmu) fórum svo bara nokkrar ferðir á Sorpu með allt draslið. Ég var búinn að lofa mömmu að hjálpa þeim við þetta, þar sem hún var svo góð að setja strípur í mig á laugardaginn og ná svo í mig um laugardagsnóttina.

En í dag er ég ekki frá því að ég sé að verða veikur. Ég er kominn með eitthvað ógeð í hálsinn og er byrjaður að fá svolitla beinverki hér og þar, en ég ætti nú ekki að verða veikur, þar sem ég er byrjaður á fullu að taka lýsi og tek það á hverjum einasta morgni. Vonum bara að það virki.

Ég er að fara í tíma eftir nokkrar mínútur, en eftir það ætla ég að skella mér upp á Þjóðarbókhlöðu og læra fyrir risastórt Náttúru- og efnafræðipróf, en ég verð að fá 5 eða hærra á því til að sleppa við lokapróf - sem ég ætla líka að gera! Það er samt alveg hægara sagt en gert, þar sem ég er svolítið eftir á í þessum efnum, en mér skal takast það.

Segjum þetta annars bara ágætt bili. Þetta varð aðeins lengra en ég hélt.




Athugasemdir ():