Dagurinn í dag - rafmagnsleysið leyst?
Skrifað þriðjud. 22. apríl 2008 - 23:44Í gærkvöldi byrjaði ég að fá eitthvað ógeð í hálsinn og missti þ.a.l. röddina í morgun, en ég var alveg viss um það að ég væri að verða veikur, en ég er held ég bara nokkuð góður núna. Það verður gaman að sjá hvernig ég verð á morgun.
Ég skellti mér í gærkvöldi á Kringlukránna til að læra þar sem ég gat verið þar í ágætis friði. Mjög fínt bara, mætti samt vera sterkara þráðlaust net þarna, en ég fann eitthvað net sem var ekki merkt Kringlunni né Vodafone og átti eflaust ekkert að vera opið fyrir almenning.
Ég hefði viljað vera lengur á Kránni að læra, en tölvan varð víst batteríslaus og gleymdi ég að sjálfsögðu hleðslutækinu heima, þannig ég fór bara heim og hélt áfram þar. Ég truflaðist hins vegar um leið og ég kom heim en ég fór að horfa á American Idol. Svo eftir það lærði ég til 4 um nótt og fór svo bara að sofa.
Í morgun var ég svo í prófinu en mér gekk bara mjög vel. Ég þarf að fá 5 eða hærra í þessu prófi svo ég fái að sleppa við lokaprófið, en út frá velgengni minni í prófinu, hugsa ég að ég sé að fara að sleppa við lokaprófið. Ég get varla beðið eftir því að fá að vita úr prófinu.
Í dag fór ég svo með bílinn minn og lét aftengja þjófavörnina í honum, þar sem það kom víst í ljós um daginn að þetta væri þjófavarnarkerfið sem væri að leiða svona út. Ég lét bara taka það úr sambandi og er núna að prófa hvort það sé ekki örugglega það, en þá þarf ég að láta bílinn standa óhreyfðan í mjög marga tíma og athuga þannig hvort alternatorinn sé að hlaða inn á geyminn. Ef bíllinn verður ekkert rafmagnslaus læt ég annað hvort gera við kerfið eða kaupi mér nýtt.
Í kvöld fórum við Grétar svo og fengum okkur bragðaref í Erluís, en hann hélt að ég læsi hugsanir þegar hann bað mig um að koma að gera eitthvað og ég stakk upp á því að við færum og fengjum okkur bragðaref.
Eftir bragðarefs-rúntinn fórum við bara heim til mín og horfðum á Over Her Dead Body.
En núna er ég bara að fara að sofa, þar sem ég þarf að fara að vinna á morgun. Segjum þetta ágætt í bili.

Athugasemdir (