Allt að verða vitlaust
Skrifað fimmtud. 24. apríl 2008 - 23:23Það er víst allt að verða vitlaust eftir þessi mótmæli atvinnubílstjóra á Suðurlandsvegi í gær. Þetta áttu nú bara að vera friðsamleg mótmæli, svipað og öll mótmæli sem þeir hafa átt upptök að, en þetta endaði með ósköpum og voru fjölmargar löggur komnar með hjálma og óeirðarskildi til að stöðva brjálaðan almúginn, sem hafði bæst við í hóp atvinnubílstjóra.
Ég er búinn að sjá nokkur myndbönd á netinu frá mótmælunum. Mér hefði aldrei dottið það til hugar að þetta hefði verið svona slæmt, en það sést nokkuð vel í þessu myndbandi hversu alvarlegt og slæmt ástandið var.
Ég er ekki beint sammála þessum aðgerðum lögreglunnar, en þegar maður horfir á málið út frá öllum hliðum, þá spyr maður sig: Hvað gat lögreglan gert annað þegar fólk var byrjað að kasta grjóti, eggjum og öðrum lausamunum í þá? En þá er einnig hægt að spyrja sig að þessu: Hefði þessu öllu verið kastað ef lögreglan hefði ekki gripið til þeirra aðgerða að reyna að stöðva mótmælin með öllum tiltækum ráðum?
Ég hugsa að það hefði bara verið best að leyfa fólkinu að mótmæla friðsamlega og leyfa svo mótmælahópnum að leysast upp að lokum. En þess í stað ákvað lögreglan að beita óþarfa aðgerðum, sem eru að mínu mati allt of grófar, til þess að reyna að leysa múginn upp.
Að mínu mati voru það mikil mistök að grípa svona snemma til piparúðans, þar sem eina sem það gerði var að æsa múginn meira upp. Einnig er piparúðinn vís til þess að fara á saklaust fólk, þar sem hann er með mikla drægni og spreyjast sem úði, en sprautast ekki sem buna.
Ástandið er orðið svolítið slæmt þegar fólk er byrjað að ráðast á lögregluna eftir þetta, eins og t.d. hérna, en ég veit bara það að ég myndi ekki vilja vera lögreglumaður á vakt um helgina.
Að lokum finnst mér sprenghlægilegt þetta mál með Láru Ómars, fréttamann Stöðvar 2, þar sem hún sagði óvart í beinni að hún gæti fengið einhverja til þess að kasta eggjum í lögregluna á meðan fréttaupptakan væri í gangi. Hún afsakar hins vegar allt hérna. Greyið konan ætti að sjá sóma sinn í að segja af sér, þar sem meira klúður á vinnuferli sínum hef ég aldrei séð.
Þetta getur heldur ekki verið gott fyrir orðspor fréttatíma Stöðvar 2, þar sem þetta eykur allavega ekki trúverðugleika frétta þeirra.

Athugasemdir (