Vinnuhelgi
Skrifað laugard. 26. apríl 2008 - 20:17Þessi helgi verður bara róleg, þar sem þetta er vinnuhelgin mín. Ég var að vinna í gær og það var því miður ekkert að gera, en vonandi verður meira að gera í kvöld.
Þegar ég kom heim úr vinnunni í gær ákvað ég að setja start á bílinn minn, þar sem hann er búinn að vera rafmagnslaus síðan mamma og pabbi fóru, og er ég bara búinn að vera á mömmu bíl síðan þá. Ég kom heim kl 6 í morgun en fór í rúmið kl 8. Ég var sem sagt í heila 2 tíma að koma bílnum mínum í gang.
Ég byrjaði á því að reyna að starta bílnum með rafgeymi úr bílskúrnum, en geymirinn á bílnum mínum var svo tómur að hann fór ekki í gang. Svo prófaði ég að skella hleðslutæki í hálftíma á geyminn minn, en það gekk ekki heldur. Að lokum prófaði ég að tengja Mözduna hennar mömmu við bílinn minn, en það gekk í fyrstu ekki, þangað til ég gaf mömmu bíl inn í nokkrar mínútur, til að leyfa geyminum mínum að hlaða sig. Þá hrökk hann loksins í gang!
Eftir það keyrði ég hann bara alveg að bílskúrnum og skellti hleðslutæki á geyminn minn og lét það vera á alveg þangað til ég vaknaði núna áðan, þannig ég vona að hann fari í gang núna. Ef ekki, þá verð ég að fá mömmu bíl lánaðan - enn og aftur.
En ég ætla núna að fara að finna mér eitthvað að borða áður en ég fer að vinna. Segjum þetta bara ágætt í bili.

Athugasemdir (