Nýr rafgeymir & verkalýðspróf
Skrifað þriðjud. 29. apríl 2008 - 16:05Ég fór í gær í SKORRA til Hlyns vinar míns og bað hann um að athuga geyminn á bílnum, þar sem undanfarna daga hefur hann verið mjög leiðinlegur.
Ég lét rífa þjófavörnina úr bílnum fyrir nokkrum vikum, en samt var hann alltaf rafmagnslaus. Ég þurfti m.a.s. að vera á mömmu bíl um alla helgina, þar sem ég gat ekki startað bílnum mínum.
Hlynur mældi geyminn fyrir mig og sá að hann var alveg tómur. Hann mældi einnig útleiðsluna og athugaði hleðsluna þegar bíllinn var í gangi, og var skv. honum útleiðslan engin og hleðslan góð. En þar sem geymirinn minn var tómur bauðst hann til þess að lána mér sinn geymi og hlaða minn á meðan.
Svo í dag fór ég aftur til hans. Hann mældi geyminn minn aftur og sagði að sýrumagnið í vatninu væri of mikið, og úrskurðaði því geyminn ónýtan. Þannig ég skellti mér bara á nýjan geymi.
Það verður spennandi að sjá hvort hann hagi sér eftir þetta. Ef ekki, úrskurða ég bílinn ónýtan.
Ég er annars bara núna á fullu að læra fyrir próf sem ég er að fara í á fimmtudaginn. Ástæðan fyrir því er sú að ég þarf að taka eitt hlutapróf sem ég missti af, og þar sem lokaprófin byrja núna á föstudaginn, bauð kennarinn mér að taka þetta hlutapróf heima hjá sér á fimmtudaginn - á verkalýðsdeginum sjálfum!

Athugasemdir (