Deila á Facebook
« Nýr rafgeymir & verkalýðspróf | Aðalsíða | Verkalýðsdjamm »

Skólinn búinn
Skrifað miðvikud. 30. apríl 2008 - 16:57
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Jæja, þá er skólinn búinn. Núna eru bara prófin eftir og þá er ég kominn í "sumarfrí".

Ég er kominn með vinnu fyrir sumarið en ég verð að vinna í Húsasmiðjunni eins og í fyrra. Guðjón, yfirmaður í Húsasmiðjunni, hringdi í mig í gær og bauð mér vinnu, og þáði ég það. Það verður fínt, þar sem það verður helling af frábæru fólki að vinna með mér, þ.á.m. Helgi, Pétur, Óli, Elli, ofl. Þetta verður gaman.

Eftir skóla kl 1 í dag fór ég upp í Bónusvídeó til Sollu og er búinn að vera þar síðan. Talandi um að maður hafi ekkert að gera. Maður ætti kannski að drífa sig heim og halda áfram að læra fyrir prófið á morgun.

Við fengum okkur Wilson's pizzu áðan og er það í fyrsta skiptið sem ég smakka þær. Ég verð nú bara að segja að þær komu mér mjög á óvart og verð nú bara að segja að þær eru mjög góðar. Mæli með þeim.

Hvað varðar kvöldið þá erum við Solla að fara að horfa á I Am Legend og 1408 eftir vinnu hjá henni. Ég er satt að segja búinn að hlakka mikið til að horfa á þessar myndir, þar sem ég hef heyrt að þær séu mjög góðar.

Helgin framundan verður skrautleg, þar sem ég er að fara til Akureyrar á föstudaginn með Sollu, Þórdísi, Ásdísi og Ingvari, og ætlum við að gera okkur glaðan dag þar. Svo á laugardaginn er ég að fara á Hlustendaverðlaunin með Gumma, Steina, Rafni og Skúla. Helgin lítur bara vel út og verður án efa mjög skemmtileg.

Segjum þetta bara annars ágætt í bili.




Athugasemdir ():