Deila á Facebook
« Unnur Birna er Miss World 2005 | Aðalsíða | Tvítugsafmæli ofl. »

Gærkvöldið - myndir komnar inn!
Skrifað laugard. 10. desember 2005 - 20:57
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Gærkvöldið var fínt. Ekkert hægt að setja út á það.

Kvöldið byrjaði á því að ég borðaði plokkfisk, sem er viðbjóður! Því næst skutlaði ég mömmu í eitthvað afmæli og splæsti hún fullum tanki af bensíni handa mér. Eftir það fóru ég, Gugga Grétar, Jökull og Beta í Adam&Evu. Ég veit ekki hver átti hugmyndina af því að fara þangað.

Eftir það fóru ég og Grétar heim og gerðum okkur klára fyrir kvöldið. Svo fórum við í partý heima hjá Jökli. Það var bara gaman!
Þegar klukkan var orðið svolítið margt fóru ég, Gugga og Grétar niður í bæ og kíktum aðeins við á Café Cozy. Svo fórum við á Hlölla og hittum þar auðvitað Áka. Hann var hress eins og alltaf. Svo fórum við aftur á Café Cozy og vorum þar í dálítinn tíma. Seinna kom Dofri sæti og var með okkur það sem eftir var kvöldsins.

En eins og þið takið líklegast eftir er komið myndasvæði inn. Ég fékk svo margar beiðnir um þetta þannig ég ákvað bara að skella þessu inn. Þangað mun ég henda inn myndum af djamminu og eitthvað.

En djöfull er ég latur. Ég ætlaði að vera geðveikt duglegur og læra geðveikt mikið fyrir síðasta prófið mitt sem er íslenska á mánudaginn nk. Ég vaknaði seint í dag og er ekki byrjaður að lesa. Þetta er ekki nógu gott! Ég á örugglega ekki eftir að lesa neitt í kvöld. Ég er alveg ótrúlega latur.

Lag dagsins:
Páll Óskar - Ég er bundinn fastur við þig




Athugasemdir ():