Deila á Facebook
« Gærkvöldið - myndir komnar inn! | Aðalsíða | IDOL X stream »

Tvítugsafmæli ofl.
Skrifað sunnud. 11. desember 2005 - 08:39
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég ætlaði mér engan veginn að djamma í kvöld. Ég ætlaði bara að rúnta smá og fara svo snemma að sofa svo ég gæti vaknað snemma og farið að læra.

Nei nei, það fór eitthvað úrskeiðis. Ég byrjaði á því að rúnta smá með Grétari og Guggu. Eftir það skutlaði ég Grétari til Helga þar sem þeir voru að fara í tvítugsafmæli til Ómars. Til hamingju, Ómar.
Allavega, svo fór ég og skutlaði Guggu heim, svo nennti ég ekki að fara heim þannig ég ákvað bara að fara upp í Bónus Video og fá mér bragðaref. Þegar ég kom út úr Bónus Video hitti ég Herdísi, kærustuna hans Helga, og Helgu og spjallaði ég smá við þær. Herdís sagði mér að kíkja í afmælið til Ómars. Ég gerði það og elti þær, þar sem ég rataði ekki.

Seinna koma Grétar og Gugga og förum við að rúnta á minibusinum. Sem sagt Mitsubishi L300. Hversu töff er það? Allavega, við förum að rúnta eitthvað og svo förum við að sækja fólkið í afmælinu. Við komum við hjá Ingvari þar sem allt verður vitlaust og einhver brjálaður nágranni kemur og gerir allt vitlaust og hótar að hringja í lögguna og allt. Við reynum að hafa hljótt, þó það takist erfiðlega. Ég fæ mér að drekka eitthvað Tequila hjá Ingvari. Meira ruglið!

Eftir heimsóknina hjá Ingvari fórum við niður í bæ. Við byrjuðum á Gauknum og var fínt þar. Þar hitti ég Kamil og vinguðumst við.
Þetta byrjaði allt með því að fyrrverandi kærasta hans kom í eitthvað partý til mín og dó/sofnaði svo í rúminu mínu. Hann frétti svo af því og hélt að ég ætlaði mér eitthvað með henni, sem ég ætlaði ekki. Bara misskilningur út í eitt.

Eftir að ég hitti Kamil, fóru Grétar, Gugga, Helgi og Herdís eitthvað að rúnta og fóru ég og Kamil á Café Viktor. Hittum við þar eitthvað fólk og fór ég að bulla í þeim að ég væri sálfræðingur. Eftir að ég var búinn að ljúga því að þeim þá komst ég að því að ein stelpan þarna var barnasálfræðingur og hófumst skemmtilegar umræður út frá því. Algjör steypa.

Eftir það fórum við eitthvað á Glaumbar, Ara í Ögri og svo Café Cozy. Gugga og herdís lentu í einhverju veseni með skilríki á Cozy. Ég fór á barinn og ætlaði að kaupa mér bjór. Þá bað eigandinn mig um skilríki. Svo sýndi ég henni mín og þá bað hún Guggu um skilríki. Gugga sagðist ekki vera með skilríki og sagði eigandinn að hún mætti ekki vera hér inni. Svo endaði Gugga á því að sýna henni skilríki og fékk að vera inni eftir langt og leiðinlegt þras.
Þá kom að því að Herdís var spurð um skilríki af einhverjum útlendingi sem kunni ekkert í íslensku. Hún sýndi henni skilríkin sín og þá sagði konan: "You have to be 20 to be in here. It's the laws!". Voðalega brengluð enska en allavega ég sagði við hana að ég væri lögfræðingur og vissi allt um þetta og sagði henni að samkvæmt lögum þyrfti maður einungis að vera 18 ára til að vera inni á svona stöðum en 20 ára til að geta keypt áfengi. Hehehe, hún sló létt í mig og sagði eitthvað "You're the best!" og leyfði henni að vera. Hehehe.

Ég er ekki alveg með atburði kvöldsins í réttri röð en þetta er svona sirka. Svo fórum við eitthvað að rúnta og svo fórum ég og Kamil eitthvað og Grétar og Gugga fóru heim til Helga og eitthvað og svo komu þau aftur og við fórum heim.

Skemmtilegt kvöld.
Ég er ekki alveg að standa mig sem ljósmyndari þar sem ég tók einungis 6 myndir. Það er ekki nógu gott. Ég verð að fara að bæta mig. En þið getið skoðað myndirnar frá kvöldinu hérna.




Athugasemdir ():