Ella systir á afmæli
Skrifað fimmtud. 12. júní 2008 - 23:32Jæja, það er víst brjálað að gera hjá manni og voða lítill tími fyrir tölvuna, hvað þá bloggið. Ella systir mín á samt afmæli í dag og er skvísan orðin 24 ára gömul. Til hamingju með það! 
Í tilefninu af afmælinu fórum við fjölskyldan út að borða á Ítalíu í kvöld. Það var mjög gaman og gott. Því miður ekki oft sem maður gerir eitthvað með fjölskyldunni.
En ástæðan af hverju það er svona brjálað að gera hjá mér er út af því að ég er að vinna alla daga og allar helgar, og fyrir utan það er ég í sumarskólanum og ræktinni, þannig mér gefst voða lítill frítími.
En á döfinni um helgina er annað hvort grillpartý eða útileiga. Ég er reyndar að vinna á laugardaginn en ef ég fer í útileiguna, ætlum við að fara á laugardeginum og koma svo aftur á sunnudeginum.
Svo á mánudaginn er David Guetta í nýju Laugardalshöllinni, en Karlotta var svo yndisleg að redda mér miða á hann, þannig ég þarf ekki að eyða síðustu aurunum mínum í miða. Takk æðislega, Karlotta mín.
Þetta verður svaðalegt!
Ég spurði nokkra hvort hefðin væri að djamma 17. júní, en svarið var alltaf neikvætt og sagt að maður djammi bara 16. Ég er alveg til í 10. bekkjarfyllerí, fara niður í bæ með bakpoka með bjór í og láta eins og unglingur - for old times sake. Who's with me?

Athugasemdir (