Útilega
Skrifað sunnud. 15. júní 2008 - 20:50Í gær fórum við strákarnir í útilegu. Við fórum reyndar bara 3; ég, Grétar og Jökull. Staðurinn sem við fórum á var einkalóð rétt hjá Flúðum og því var ekki víst hvort við mættum vera þarna eða hvað.
Við vorum búnir að ákveða að leggja af stað kl 6, en það breyttist svo allt í einu í 8. Ég skellti mér þá bara með Ella vinnufélaga mínum á Nings og í Kringluna eftir vinnu, þar sem brottfarartíminn breyttist skyndilega.
Elli ætlaði bara að kaupa miða á David Guetta í Kringlunni, sem er á morgun, og ákvað ég bara að fara með honum að kaupa miðann. Við enduðum svo á Kringlukránni og horfðum á EM leikinn á milli Spánar og Svíþjóðar, sem endaði 2-1 fyrir Spáni.
Eftir það fór ég bara heim og ætlaði að gera mig til, en þá var systir mín að gera sig klára fyrir einhverja útskriftarveislu og komst ég því ekki inn á bað fyrr en rétt fyrir 8, og því þurftu strákarnir að bíða eftir mér á meðan ég var að gera mig til. Frekar ömurlegt.
Við byrjuðum að sjálfsögðu á því að borða. Við Jökull fórum á Skalla og fengum okkur að borða á meðan Grétar tók bensín. Svo lögðum við í hann.
Ég er í heildina bara ágætlega sáttur við þessa útilegu. Ég svaf reyndar bæði á leiðinni þangað og á leiðinni heim og fór fyrstur að sofa þarna um kvöldið. Kannski er maður byrjaður að slappast í þessu djammi og þessari drykkju. Kannski kominn tími til að setjast niður og fara á fast.
En við vöknuðum kl 11 fyrir hádegi í dag, tókum allt saman eftir okkur og lögðum af stað í bæinn. Við náttúrulega fórum ekki heim fyrr en eftir að við höfðum stoppað á KFC og fengum okkur að borða. Svo var bara brunað í bæinn.
En núna á morgun er ég að fara á David Guetta og GusGus í nýju Laugardalshöllinni og hlakka ég ekkert smá til!
En segjum þetta ágætt í bili. Ég bíð ennþá eftir myndunum sem Jökull tók í ferðinni. Ég skelli þeim kannski inn, ef ég er ekki nakinn á þeim öllum.
Þangað til set ég inn mynd frá staðnum, sem Jökull tók síðast þegar hann var þarna...

Athugasemdir (