David Guetta og nútíðin
Skrifað laugard. 21. júní 2008 - 20:52Jæja, þá er aftur komin helgi. Það er ekki margt búið að gerast í lífi mínu til þessa, en það er kominn tími til að skrifa smávegis um það.
Á mánudaginn fór ég á David Guetta, sem haldinn var í nýju Laugardalshöllinni. Það var geggjað. Til að byrja með byrjuðum við Gummi, Elli, Skúli, Arna og Sæunn heima hjá Skúla, vin hans Gumma, en fórum svo seinna með leigubíl á tónleikana.
Franski plötusnúðurinn var vægast sagt góður, en ég missti af mest öllum lögunum hans, þar sem ég var alltaf úti að reykja og á klósettinu. Ég fór út að reykja með einhverjum sem ég hitti, fór svo inn aftur og hitti einhvern annan, sem bað mig um að koma út að reykja með sér, þannig ég var alltaf úti, á barnum eða klósettinu.
Ég hitti Halla og Palla á tónleikunum, en þeir voru í gæslunni þar. Það var mjög gaman að hitta þá þar og gaf Halli mér vodka í Burn, sem einhver stelpa bað hann um að fjarlægja.
En helsti gallinn við þetta allt saman var hvað margir voru dópaðir. Ég var t.d. spurður nokkrum sinnum hvort ég gæti reddað einhverju.
Eftir tónleikana röltum við Elli út og reyndum að redda okkur niður í bæ, en það reyndist þrautinni þyngri. Við reyndum þá að ná í leigubíl en það var heldur ekki hægt, en svo fundum við leigubíl og fékk einhver stelpa að sníkja far með okkur.
Þegar við komum niður í bæ skelltum við okkur bara beint á NASA, þar sem eftirpartýið eftir David Guetta var haldið. Þar voru Plugg'd að spila og verð ég nú bara að segja að það var miklu skemmtilegra þar heldur en í Laugardalshöllinni.
Síðan þá hef ég bara verið að vinna á fullu. En í gær var ég bara að vinna og er örugglega að fara að vinna aftur í kvöld. Það var samt svo lítið að gera í gær að ég leyfði Betu að fara heim, en það eru líka einhverjar líkur á því að ég fái að sleppa fyrr í kvöld. En það verður bara að koma betur í ljós.
Segjum þetta bara ágætt í bili.

Athugasemdir (