Deila á Facebook
« EM veðmál | Aðalsíða | Endalok DC++ á Íslandi? »

Sumarbústaður - afmæli Sollu
Skrifað mánud. 30. júní 2008 - 01:30
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Solla bauð mér fyrir svolitlu síðan í sumarbústað rétt hjá Borgarnesi í tilefni af afmælinu sínu og að sjálfsögðu þáði ég boðið og skellti mér í gær strax eftir vinnu.

Ég fékk óvænta ávísun frá tollstjóranum í Reykjavík á föstudaginn þannig ég ákvað að vera góður við mig á laugardaginn. Skellti mér með bílinn minn í Löður og þreif hann vel og vandlega, stútfyllti hann af bensíni, fór svo í ríkið og keypti áfengi fyrir bústaðinn.

Ég bauð Grétari og Svenna með mér í bústaðinn, en Svenni var eitthvað slappur og ákvað að koma ekki. Það varð bara til þess að ég og Grétar fórum einir. Hitt fólkið fór á föstudeginum en þar sem við Grétar vorum báðir að vinna á laugardeginum fórum við þá.

Við lögðum af stað rétt um klukkan 9 eða stuttu eftir að Grétar var búinn að vinna. Við fórum tveir á bílnum mínum og vorum í sirka klukkutíma á leiðinni.

Ferðin byrjaði bara mjög vel en stuttu áður en við komum að Hvalfjarðargöngunum voru einhver krakkafífl sem ákváðu að vera fyndin og keyra á móti okkur á sömu akrein og við, á meðan annar bíll var á hinni akreininni. Við vissum í alvöru ekki hvað við áttum að gera. Við urðum báðir skíthræddir og voru næstum því viðbrögðin mín að beygja frá, en þá hefðum við eflaust endað nærri dauða en lífi í hrauninu.

Hvað er málið með svona heilalaus fífl? Hvað ef ég hefði óvart í óðagoti beygt frá og endað með bílinn út af. Ég er viss um að þeir hefðu hlegið rosalega mikið þá. Mig langaði mest til að snúa við og elta þessa fávita, en því miður urðum við svo skelfingu lostnir að við gleymdum að ná númerinu á bílnum.

Eftir þetta vorum við báðir í verulegu sjokki en Grétar sagði mér að láta þetta ekki eyðileggja ferðina, þar sem ég talaði ekki um annað en að snúa við og elta þessi fífl. En við héldum ferðinni bara áfram og hættum að hugsa um þetta.

Þegar við komum á staðinn voru Solla, Þórdís, Una, Arnar og Róar þarna. Það var búið að bera mat fram á borð og okkur boðið að borða dýrlegt lambakjöt sem Þórdís eldaði. Svo í eftirrétt fengum við að velja á milli sykurpúða og grillaðs bananana með súkkulaði. Ég afþakkaði bæði, þar sem ég var allt of saddur fyrir eftirrétt.

Fljótlega eftir mat, eftir að ég og Solla vorum búin að vaska upp (hún vaskaði upp og ég þurrkaði) fórum við í drykkjuleiki. Það var bara mjög gaman, en eftir dágóðan tíma í drykkjuleikjum ákváðum við að skella okkur í pottinn, þar sem hitastigið var fullkomið á þessum tímapunkti.

Það var rosalega fínt í heitapottinum en Þórdís snillingur fyllti stóra vatnsbyssu fulla af Baccardi Razz + Sprite og sá um að sprauta upp í fólk sem var þyrst.

Eftir dágóðan tíma í pottinum ákvað ég að fara upp úr, skellti mér í sturtu og fór svo bara stuttu eftir að sofa.

Ég skemmti mér konunglega og vil bara þakka kærlega fyrir mig og enn og aftur óska Sollu innilega til hamingju með afmælið.




Athugasemdir ():