Deila á Facebook
« Endalok DC++ á Íslandi? | Aðalsíða | Veðurspáin »

Sjónvarpsflakkari
Skrifað föstud. 4. júlí 2008 - 01:27
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Núna verð ég að fara að kaupa mér sjónvarpsflakkara til að geta horft á efni í sjónvarpinu. Ég er búinn að sía valið nokkurn veginn en það stendur í tvennu.

Um er að velja fjórar tegundir; INOi, IcyBox, Mvix eða Popcorn Hour. Mér líst eiginlega best á Mvix, fyrir utan Popcorn Hour, en hann kemur ekki aftur til landsins fyrr en í enda júlí. Spurning hvort ég nenni að bíða þangað til.

Mvix er rosalega flottur. Hann getur spilað eiginlega öll formöt, ásamt því að geta spilað HD (High Definition) 1080i. Einnig er hann með innbyggðu þráðlausu netkorti, þannig það þarf ekki að setja efni inn á hann með snúru, getur bara gert það í gegnum þráðlausa netið. Hann styður líka SATA diska sem er bráðnauðsynlegt í dag.

Hann er líka bara svo flottur...





Athugasemdir ():