Danmerkurferðin - hluti 1
Skrifað þriðjud. 12. ágúst 2008 - 20:05Jæja, ég ákvað að blogga smávegis þar sem ég komst loksins í tölvu. Ég er allavega staddur úti núna og ákvað bara að láta vita af mér og segja hvað er að frétta.
Á föstudaginn lögðum við fjölskyldan af stað til Danmerkur til að fara í brúðkaup hjá frænda okkar, honum Böðvari.
Við komum kl 3 um dag til Kaupmannahafnar og byrjuðum strax á því að fara í Field's að hitta Ellu. Við fengum okkur KFC þar og fannst mér nú frekar lélegt að þeir voru ekki með BBQ-bita þar, heldur bara BBQ sósu í pökkum sem maður þurfti að hella sjálfur á.
Eftir það keyrðum við upp að tjaldstæðinu okkar, sem bar heitið Bamsebo í Ulstrup. Það tók okkur nokkra tíma og svo nokkra tíma að finna staðinn, þar sem það var niðamyrkur þegar við vorum að keyra síðustu metrana.
Þegar við komum til Bamsebo Camping heilsuðum við upp á allt fólkið og kíktum í bjór heim til Siggu á meðan við biðum eftir Krissa og Hildi, þar sem þau lögðu af stað klukkutíma á eftir okkur. Þegar þau komu tókum við bara vel á móti þeim og fórum svo bara að sofa.
Á laugardaginn vöknuðum við eldsnemma um morguninn kl 9. Sigga og þau fóru eldsnemma upp í kirkju að gera allt tilbúið og vorum við búin að lofa þeim að vera tilbúin þegar þau kæmu til baka, svo þau gætu gert sig tilbúin og við á meðan klippt út hjörtu fyrir brúðkaupið.
Svo þegar við vorum á leiðinni í brúðkaupið keyrðum við svolitla stund að kirkjunni. Athöfnin var mjög flott, en mér fannst nokkrir vankantar. Kirkjan var of illa hönnuð, þannig maður sá ekki neitt í brúðhjónin. Svo var presturinn rosalega illa til hafður, mjög skeggjaður og hálf útigangslegur, en þetta var að öðru leyti mjög flott allt saman. Brúðarbíllinn var heldur ekki af verri týpunni, en það var 69-72 Mustang. Geðveikur!
Eftir athöfnina í kirkjunni fóru brúðhjónin, þau Böðvar og Carina, í myndatökur og við upp í hús til þeirra til að skoða hvað þau voru búin að gera þar, þar sem þau eru búin að leggja hörðum höndum að því að gera það flottara en það var, og var það alveg stórkoslega flott hjá þeim.
Eftir það fórum við í veisluna, sem var haldin í sal rétt hjá tjaldstæðinu okkar. Þegar við komum var okkur boðið upp á kaffi og kökur, en ég sleppti því nú þar sem þetta var rétt fyrir matinn. Þarna biðum við bara sallaróleg eftir brúðhjónunum. Eftir að þau komu vorum við flutt yfir í stórglæsilegan sal sem var dekkaður mjög hátíðlega og flott upp.
Brúðkaupsveislan var mjög flott og skemmtileg. Það voru að vísu ótal ræður og skildi ég satt að segja ekkert af því, fyrir utan ræðuna sem afi brúðgumans hélt, sem flutt var á íslensku.
Eftir að maturinn var búinn var tekið öll borð og alla stóla frá og var leyft fólkinu að dansa. Áfengið flæddi en ég hélt mér þurrum þarna, þar sem ég var ennþá mjög slappur eftir veikindin, ennþá á penisillíni og langaði bara ekkert að drekka. Ég var líka búinn að lofa mömmu og pabba að keyra þau heim eftir þetta, og stóð ég við það.
Eftir allt saman fórum við upp á tjaldstæði þar sem ég fékk mér bjór. Þá vildi Gummi frændi allt í einu að ég myndi keyra til Árhús, en ég tók það nú ekki í mál þar sem ég ætlaði sko að fá mér bjór.
Við byrjuðum í partýi hjá Siggu, en þegar allt fólkið kom þangað og við náðum upp brjálaðri stemmningu með gítar og rosalega söngelsku fólki, kom tjaldstæðavörðurinn og sagði okkur að steinhalda kjafti. Við hlýddum því og hópurinn sundraðist. Svo fórum við í eitt annað partý, þar sem einhverjir brjálaðir Danir stálu öllum bjórnum mínum. Svo fórum við bara að sofa.
Ég vil bara óska Böðvari og Carinu innilega til hamingju með hjónabandið og óska því langlífi og hamingju.
Á sunnudaginn vaknaði ég kl 6. Ég ákvað að sofa út, þar sem það var ekkert merkilegt um að vera þennan dag. Við grilluðum og enduðum svo í partýi hjá Fríðu tengdó og Böðvari og fórum svo bara að sofa.
Á mánudaginn vöknuðum við kl 9 og tókum okkur til. Ég var feginn að losna þaðan, þar sem vespurnar voru byrjaðar að pirra okkur verulega mikið.
Við keyrðum svo bara til Fredrikshavn, þar sem við gistum eina nótt í mjög þægilegum sumarbústaði. Við fórum út að borða á frekar ógeðslegum ítölskum veitingastað, þar sem A1 eða A2 blöð voru notuð fyrir dúka og álpappír sem undirskál fyrir kertin. Maturinn var samt mjög góður og nutum við hans mjög. Eftir það kíktum við aðeins á írskan pöbb, þar sem við fengum okkur bjór og skelltum okkur svo bara heim að sofa.
Á þriðjudaginn eða í dag vöknuðum við eldsnemma í morgun og fórum í risastóra ferju sem sigldi með okkur frá Fredrikshavn í Danmörku til Oslo í Noregi. Siglingin var löng eða 7 tímar sirka, en það var margt og mikið að gera um borð. Þetta var líka mun rólegra en Herjólfur, sem vaggar meira en allt, enda kallaður Gubbólfur með réttu.
Núna erum við bara stödd hjá Ingólfi og Erlu í Oslo, þar sem við munum gista nokkrar nætur. Við ákváðum að kíkja aðeins til Noregs bara til að skoða fæðingarstaðinn okkar og þar sem við vorum alin upp.
Eftir nokkra daga munum við svo sigla aftur til Danmerkur, þar sem við ætlum að kíkja í Christaniu, á strikið og í tívolíið. Svo komum við bara heim.
Hlakka mikið til að sjá ykkur. Segjum þetta bara ágætt í bili. Ég kem svo vafalaust með hluta 2 seinna.

Athugasemdir (