Deila á Facebook
« Dagurinn í gær | Aðalsíða | Kvennafrídagur hvað? »

Lóner
Skrifað sunnud. 23. október 2005 - 17:43
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Jæja, enn eitt misheppnað kvöld. Ég vaknaði seint, klæddi mig og gerði mig kláran fyrir kvöldið. Fór til Óla vinar míns og skutlaði honum á milli staða til að hann gæti rukkað fólk.

Eftir það fór ég heim, settist smá við tölvuna, talaði við vini mína og spurði þá hvort þeir nenntu ekki að koma að gera eitthvað. Enginn nennti neinu.

En allavega, einn vinur minn sem nennti ekki. Ég fékk hann loksins til að rúnta smá. Eftir smá rúnt og mikið bjórhlaup, langaði honum að fara heim. Ég sagði honum bara að fara heim og ég var einn eftir niðri í bæ.

Þá var ég aftur kominn á byrjunarreit, eins og í gær. EINN NIÐRI Í BÆ! Er löngunin til djamms og áfengis svona mikil að ég þurfi að vera einn niðri í bæ til að geta fengið útrás á bjórnum og dansgólfinu? Ég get ekki hugsað mér að vera í skólanum og vinnunni 5 daga í röð og svo gera ekki neitt um helgar. Það er óhugsandi hlutur sem ég ætla ekki að gera.

Ég fór inn á Glaumbar. Drakk nokkra þar, fór á dansgólfið og hitti vinkonur mínar þar og byrja að dansa við þær. Kemur ekki eitthvað fífl sem var með vinkonu minni og hótar að kýla mig ef ég drullast ekki í burtu. Honum fannst ég víst mjög ógnandi og hélt ég væri að reyna við kærustuna sína. Hann var með vinum sínum þarna, þannig ég bakkaði bara smá og hélt áfram að dansa óáreittur.

Klukkan 05:30, lokaði Glaumbar og allir staðir niðri í bæ. HÁLF SEX! Er ekki í lagi? Fólk er ekki útdjammað kl hálf 6 get ég sko sagt ykkur. Jæja, ég rölti þarna EINN um götur miðbæjarins og þurfti að bíða til kl 7 eða í einn og hálfan tíma. Vinur minn var búinn að vinna kl 7 á Hlöllavagninum þannig ég gat fengið far með honum heim.

Ég sest fyrir utan Hlöllavagninn og er að drepast úr kulda þegar allt í einu sé ég tvær vinkonur systir minnar, þær Berglindi og Ernu (bjargvættirnir). Ég fer og tala við þær og spyr hvort þær séu á leiðinni heim. Þær voru á leiðinni heim þannig ég var svo heppinn að geta deilt leigubíl með þeim fyrir síðustu aurana mína, heilan fimmhundruð kall.

Eftir þetta fór ég bara heim að sofa.

Anyhow, ég er að fara að vinna núna kl 6 þannig ég kveð ykkur í bili.




Athugasemdir ():