Deila á Facebook
« Danmerkurferðin - hluti 1 | Aðalsíða | Danmerkurferðin - hluti 3 »

Danmerkurferðin - hluti 2
Skrifað miðvikud. 13. ágúst 2008 - 23:27
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Jæja, við erum ennþá stödd hjá Ingólfi og Erlu, þannig maður kemst on daily basis í tölvu til að blogga.

Í dag vöknuðum við um hádegisbilið og fengum okkur morgunmat. Eftir það fórum við og skoðuðum Osló, m.a. þar sem Ella var skírð, hvar mamma og pabbi bjuggu, gamla vinnustaðinn hans pabba, ofl. staði.

Eftir það kíktum við í verslunarstöðina Manglerud þar sem ég fór í klippingu. Djöfull er herraklipping dýr hérna í Noregi, 5500 íslenskar krónur takk fyrir! Þetta var ekki einu sinni flott klipping. Það er líka svo skrítið, manni finnst maður alltaf vera með síðara hár í stólnum heldur en þegar maður kemur úr stólnum. Mér finnst ég núna ekki vera með neitt hár. Skemmtilegt.

Ég sá einnig helvíti fína myndavél (Canon IXUS 90IS), sem er 11.000 kr. ódýrari en á Íslandi. Ég er tiltölulega nýbúinn að kaupa mér vél (Sony Cyber-shot) en ég sullaði yfir hana gosi, þannig það er spurning hvort ég skelli mér ekki bara á IXUS vélina og selji hina fyrir slikk.

Eftir Manglerud fórum við í verslunarstöðina Stovner, þar sem ég keypti mér eitthvað vax drasl á 3000 íslenskar krónur. Ég er einn af þeim sem borgar bara og græt svo eftir á yfir verðinu.

Ég keypti mér einnig mjög flotta brúna leðurskó, sem ég mun eflaust nota daglega. Ég er ánægðastur með þau kaup, þar sem ég borgaði sirka 7000 kr. fyrir þá, en það var einhver 30% afsláttur af þeim. Ég er samt alveg viss um það að ég hefði borgað 20.000 kr. fyrir þá ef þeir hefðu kostað það, þar sem afgreiðslustúlkan var einum of heit og varð maður hálf partinn kærulaus um peningana sína á meðan maður talaði við hana. Stórhættulegt.

En það er alveg ótrúlegt hvað peningarnir eru fljótir að fara hérna. Þetta er ekkert ódýrara hérna en á Íslandi, sem maður gerði nú ráð fyrir þar sem þetta eru ÚTLÖND. Þetta er nú bara mikið dýrara ef eitthvað er.

Eftir alla verslunarferðina fórum við bara heim til Ingólfs og Erlu og fengum svínakjöt á grillið. Erla og Nonni, börnin þeirra, kíktu líka ásamt mökum sínum, Samma og Maju.

Núna ætla ég bara upp og kíkja hvað er í sjónvarpinu og svo að sofa. Við ætlum að vakna snemma á morgun til að fara að versla meira. Segjum þetta bara ágætt í bili.




Athugasemdir ():