Danmerkurferðin - hluti 3
Skrifað miðvikud. 20. ágúst 2008 - 04:17Jæja þá er ég kominn heim úr þessari annars skemmtilegu tveggja vikna reisu. Ég ætla aðeins að segja frá því hvernig síðustu dagarnir voru hjá okkur.
Eftir næturnar hjá Ingólfi og Erlu í Noregi fórum við til Svíþjóðar, en fyrst skruppum við í Elkjøp (Elko) þar sem ég keypti mér Canon IXUS 90IS. Ég hef sjaldan gert svona góð kaup, þar sem svona vél kostar 47.000 hérna á Íslandi, en ég fékk hana á 30.000 úti.

Ég er mjög sáttur með þessa vél en hún er mun betri en Sony Cyber-shot vélin mín, sem er bara 7,2 MP, á meðan IXUS vélin er 10 MP. Svo eru IXUS vélarnar bara miklu betri en Cyber-shot. Ef þið hafið áhuga á Cyber-shot vélinni, hafið bara samband.
Eftir þessi góðu kaup keyrðum við til Svíþjóðar þar sem við komum að snilldar raftækja- og græjubúð sem ber heitið TV Boden. Pabbi ætlaði svo að sýna mér að vélin væri ódýrari í Svíþjóð, en svo var hún bara ekki til. En þetta er án efa ein mest spennandi búð sem ég hef komið í, þar sem hún seldi allt milli himins og jarðar í bíla.
Ég endaði með að kaupa "V6" og "Xtreme" merki á bílinn minn, en ég var nærri því búinn að kaupa ný framljós á bílinn minn, en hann gat ekki séð hvort þau pössuðu á bílinn minn, þannig ég gat ekki tekið áhættuna og varð þ.a.l. að sleppa því.
Ella systir fékk stjörnur í augun, hana langaði svo að innrétta bílinn sinn bleikan, þar sem það var til allt bleikt þarna í bílinn. Það voru bleikar golfmottur þarna, bleikur baksýnisspegill, bleikt stýri, bleikur gírhnúi og allur andskotinn.
Eftir þessa skemmtilegu heimsókn í þessa æðislegu búð keyrðum við til Gautaborgar. Á leiðinni fór pabbi í risastóra raftækjabúð, sem ber heitið El Giganten, en hann ætlaði enn og aftur að sýna mér að myndavélin væri ódýrari í Svíþjóð, en hún var nú bara mikið dýrari þar. Hann ákvað þá bara að gefast upp og samþykkja að þetta hefðu verið góð kaup hjá mér.
Eftir þetta var ferðinni heitið til Ellu, frænku okkar, og Jan, mannsins hennar. Þar var okkur boðið í mat og gistingu, og þáðum við það með þökkum.
Næsta dag keyrðum við til Kaupmannahafnar, þar sem við gistum í einhverjum sumarbústaði á einhverju tjaldstæði. Við skelltum okkur líka niður í bæ, þar sem ég tók vel á því og endaði með að vera frekar ölvaður. Þynnkan næsta dag var óbærileg.
Við þurftum að vera komin út af tjaldstæðinu kl 10 um morguninn næsta, en eftir það skelltum við okkur í bæinn og í tívolíið. Pabbi bauð mér upp á dagspassa, þar sem ég gat farið í hvaða tæki sem var. Ég fór í öll "hættulegustu" tækin, þ.á.m. stóra rússíbanann og fallhamarinn. Fallhamarinn var án efa mesta adrenalín kick sem ég hef fengið á ævi minni. Sjúklega gaman!
Um kvöldmatarleytið fórum við á Hereford og borðuðum síðustu máltíðina okkar saman þarna úti. Eftir það skutluðu mamma og pabbi okkur Ellu bara út á flugvöll, þar sem við kvöddum þau og flugum til Íslands.
Á þessum tveim vikum keyrðum við frá Danmörku til Noregs og þaðan til Svíþjóðar og svo aftur til Danmerkur. Það má því eiginlega segja að þessi ferð hafi að mestu leyti verið í bíl. En það breytir því ekki að þetta var fáránlega gaman og bjargaði gjörsamlega sumrinu.
En núna fer alvaran að byrja, þ.e.a.s. skólinn. Ég er að taka rosalega mikið þessa önn eða 26 einingar í dagskóla, ásamt 6 einingum í fjarnámi. Það er ekkert smáræði. Það er samt spurning hvort ég taki þetta bara á tveim önnum, þar sem of mikið álag verður bara til þess að ég kolfell á öllu og allt fer í vaskinn.
En segjum þetta ágætt í bili. Það er yndislegt að vera kominn heim!

Athugasemdir (