Deila á Facebook
« Reykspól í grunnskóla | Aðalsíða | Misheppnað leikrit »

Heimkoma strákanna okkar
Skrifað miðvikud. 27. ágúst 2008 - 20:17
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Silfurhafarnir okkar komu heim frá Peking í dag og var fagnað heimkomu þeirra við Arnarhól núna í kvöld. Sett var upp svið við Arnarhól í tilefni af því og voru u.þ.b. 30 þúsund manns sem mættu til að fagna strákunum.

Athöfnin var öll mjög flott og finnst mér flott að halda þessa heimkomuathöfn þar sem það sýnir strákunum okkar að við séum afskaplega stolt af þeim.

Einkennilegust fannst mér hins vegar ræða Ólafs fyrirliða landsliðsins. Algjörlega óundirbúin en endaði hins vegar mjög flott. "Höldum áfram að breyta heiminum og virkja þá sköpunargáfu, sem býr í okkur, og verum bara best".

Við gerum okkar, gerum okkar, gerum okkar, gerum okkar BESTA! Ekki spurning!




Athugasemdir ():