Heimsendir?
Skrifað miðvikud. 10. september 2008 - 01:04Síðast liðin 30 ár hafa vísindamenn verið að byggja öreindahraðal sem nefnist LHC (Large Hadron Collider). Hraðallinn er til þess gerður að fræða okkur aðeins betur um heiminn og upptök hans.
Hraðallinn er sá stærsti sinnar tegundar, eða 27 km í ummál, og gengur ferlið þannig fyrir sig að tveir geislar eru leiddir í gagnstæðar áttir á hraða ljóssins í gegnum hraðalinn og á endanum mætast þeir í eins konar árekstri. Hitinn sem myndast er talinn vera 100 þúsund sinnum meiri en sólin getur framleitt.
Áreksturinn á að leiða af sér sprengingu/samdrátt líkt og Big Bang og munu vísindamenn/sérfræðingar frá því geta séð eitthvað um alheiminn sem ég kann ekki betri skil á.
Ekki er vitað nákvæmlega hvað muni gerast við þennan árekstur, en fólk hefur verið að koma með alls konar hugmyndir um að þetta geti leitt af sér einskonar svarthol, sem muni eyða öllu lífi á jörðinni.
Hraðallinn mun verða settur í gang kl 07:30 á eftir á íslenskum tíma.
Ég fann eitt gott myndband sem lýsir þessu.

Athugasemdir (