Deila á Facebook
« Takk Q pictures! | Aðalsíða | Nýr vefur »

Helgin - Afmæli Maju & Áki Pain
Skrifað miðvikud. 17. september 2008 - 22:56
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Afsakið bloggleysið en ég er bara einfaldlega ekki búinn að nenna að blogga. Ég ætla samt aðeins að skrifa um síðustu helgi.

Á föstudaginn var ég bara að vinna. Ég mætti klukkutíma fyrr þar sem ég átti að barþjónast í einhverju afmæli.

Kvöldið gekk bara ágætlega, fyrir utan það að ég náði einungis tveggja tíma svefni nóttina áður og lagði mig ekki um daginn áður en ég fór að vinna, og því var ég alveg vel þreyttur í lok kvöldsins.

Það leiðinlegasta við kvöldið var það hvað ég var fjarlægur öllum hinum á vaktinni, hvað afmælisgestirnir gengu illa um og hvað afmælisbarnið var mikil frekjudós. Annars var þetta bara ágætt.



Á laugardaginn var ég í fríi í vinnunni, þar sem frænka mín átti tvítugsafmæli og að sjálfsögðu varð maður að mæta í það.

Ég bauð Grétari að koma með mér og þáði hann það. Það var afar rólegt heima hjá Maju, þar sem öll fjölskyldan ásamt vinum hennar voru stödd þar. Bara matur, bjór og rólegheit.

Seinna um kvöldið var Maja svo að fara að dansa og syngja í sýningu á Apótekinu og langaði okkur Grétari ekki að missa af því, þannig við skelltum okkur í bæinn. Þetta var svolítið út af vananum, þar sem maður er ekki vanur að fara í bæinn fyrir miðnætti.

Þegar við komum á Apótekið var afar fámennt þar, en við fengum okkur bara í glas og biðum eftir sýningunni.

Klukkan var orðin 10 þarna og vorum við að furða okkur á því af hverju þetta væri ekki byrjað. Þá sagði einn vinur hennar Maju okkur að þetta byrjaði ekki fyrr en kl 11, þannig við ákváðum að kíkja á Sólon, heilsa upp á Gumma, fá okkur einn drykk og fara svo eftir það á Apótekið.

Þegar klukkan var langt gengin í 11 ætluðum við Grétar að fara aðrölta yfir, en þá fékk ég sms frá Ellu systir minni um að þetta væri búið. Þá byrjaði þetta 11. Virkilega leiðinlegt að hafa misst af þessu.

Eftir þetta kíktum við upp á efri hæðina á Sólon og hlustuðum á Áka Pain spila. Þetta var rosalega mikil breyting frá FM lögunum, sem voru mörg hver búin að vera í spilun í nokkur ár.

Satt að segja fílaði ég hann í botn, þar sem ég er techno- og dansmúsík frík dauðans. En þetta hefur sína kosti og galla eins og allt annað. Ég hugsa að þetta muni breyta því hvernig fólk sækir staðinn, en nú mun eflaust meira af fólkinu, sem var alltaf á Pravda, sækja staðinn.

En við Grétar skemmtum okkur konunglega og mun þetta kvöld lifa lengi í minnum okkar. Við viljum að sjálfsögðu þakka Gumma fyrir allt, en án hans hefði þetta kvöld ekki verið næstum því eins gott og það var.

Grétar og ég


Eftir að Sólon lokaði hittum við Júlla og byrjuðum aðeins að spjalla við hann. Svo röltum við á Hlölla, en Grétar nennti ekki að bíða og dreif sig á Glaumbar.

Eftir að við Júlli vorum búnir að borða ætluðum við að fara á Glaumbar, en það var búið að loka. Við Júlli fórum þá bara á Amsterdam og komumst við frítt inn. Ég sendi þá Grétari sms um að það væri búið að loka Glaumbar og sagði honum að koma á Amsterdam.

Seinna kvaddi Júlli og Grétar ætlaði að koma en hann komst ekki inn, þannig ég fór bara út til hans.

Á þessu stigi kvöldsins var ég orðinn svolítið ölvaður, en ég keypti mér nú samt bjór og hafði með mér út. Bara svona einn í lok kvöldsins.

Eftir gott spjall við einhverja Pólverja um rasisma kom Gummi og skutlaði okkur heim. Takk æðislega fyrir skutlið og kvöldið, Gummi og Grétar. Þetta var æðislegt!

Ég tók nokkrar myndir og henti inn, þannig endilega kíkið á þær.



Síðast liðnu daga er ég ekki búinn að gera mikið nema að læra og vera latur. Ég var búinn að ákveða að vera duglegur þessa önn, en ég er ekki að standa mig nógu vel, en ég bæti það upp.

En mesta tilhlökkunarefnið núna er næsta helgi, þar sem við strákarnir erum að fara í sumarbústað saman. Það er svolítið langt síðan við fórum í bústað síðast saman þannig þetta á vonandi eftir að verða geðveikt gaman!

En segjum þetta bara ágætt - í bili allavega.




Athugasemdir ():