Rafræn dagbók
Skrifað mánud. 22. september 2008 - 03:48Ég setti upp Mozilla Sunbird á lappann minn fyrir svolitlu síðan og byrjaði að nota það til að skrifa niður heimanám og verkefni í skólanum, ásamt öðrum hlutum sem ég þurfti að muna. Ég er orðinn svolítið háður því forriti núna.

Seinna datt mér í hug að setja Sunbird líka upp á borðtölvunni minni. Eftir að ég var búinn að því þá langaði mig að hafa sama dagatalið á báðum tölvunum, en það leit ekki út fyrir að vera hægt.
Ég leitaði og leitaði að upplýsingum á netinu um það hvernig væri hægt að tengja Sunbird á borðtölvunni við Sunbird á lappanum, en fann ekkert, nema það hvernig maður ætti að tengja Google Calendar við Sunbird, en það var ekki það sem mig vantaði.
Ég ákvað að fara mína eigin leið og finna út hvernig ég gæti gert þetta. Ég byrjaði á því að setja upp vefþjón á lappanum og vistaði dagatalið inni á honum. Svo lét ég borðtölvuna mína sækja þá skrá, en þá kom vandamálið upp, ég gat ekki skrifað í dagatalið frá borðtölvunni.
Eftir það datt mér í hug að búa til möppu á lappanum og deila henni á LAN'inu (file sharing). Ég gerði það og lét borðtölvuna mína tengjast því. Það gekk allt frábærlega, en þá kom vandamálið upp, IP talan á lappanum var ekki alltaf sú sama og því fann borðtölvan ekki alltaf lappann.
Þar sem lappinn notar þráðlausa netið hérna heima fær hún bara einhverja IP tölu hverju sinni. Þannig ég ákvað að setja network name á lappann (gauilap) og láta borðtölvuna tengjast því (file://///gauilap/).
Virkar fullkomlega, nema ég get ekki látið Sunbird uppfæra dagatalið á minna en 1 mínútu fresti. Það væri þægilegt ef þetta væri gagnvirkt eins og t.d. vírusvörnin mín. Í hvert skipti sem það er einhver hreyfing í tölvunni (innan hennar) þá skannar vírusvörnin skránna. Það ætti Sunbird líka að gera.
Það er samt ekkert annað annað í stöðunni en að sætta sig bara við þetta. Alveg fáránlegt að þetta forrit sé ekki með möguleikann til að sync'a sig við aðrar tölvur. Alveg til skammar!

Athugasemdir (