Nóg að neita bara sök?
Skrifað mánud. 22. september 2008 - 19:10Alveg finnst mér þetta fáránlegt. Þ.e.a.s. ef málið mun falla lögreglumanninum í vil, sem tók krakkann kverkataki í 10-11 í sumar, bara við það eitt að neita sök, þegar það eru til myndbönd af atburðinum á YouTube. Ef svo fer, þá getur maður verið beittur ólögmætu harðræði framkvæmdavaldsins án þess að geta gert bofs í málinu. Hvaða sönnunargögn eru betri en myndband MEÐ HLJÓÐI? Maður verður bara hálf pirraður.
Athugasemdir (

