Skrítinn draumur
Skrifað þriðjud. 23. september 2008 - 01:42Mig dreymdi rosalega skrítinn draum síðustu nótt. Mig dreymdi að geimverur hefðu ráðist á okkur og að allir hefðu farist í árásinni.
Fyrst til að byrja með sáum við hús springa hér fyrir ofan okkur en ekkert meira en nokkrar sprengingar. Svo eftir það heyrðum við einhvern hávaða þannig við fórum út og þá sáum við helling af gjöreyðileggingatækjum úr geimnum ráðast á okkur.
Næsta sem ég upplifði/dreymdi var það að ég væri dauður og væri kominn í aðra vídd. Dauðinn tók mjög stuttan tíma og var engin þjáning.
Það sérstaka við þennan draum var hvernig lífið eftir dauðann var og hversu raunverulegt þetta var.
Eftir að við komum í hina víddina var allt eins að mörgu leyti, nema það að allt fólk í heiminum var statt á einum og sama staðnum.
Hvað ætli þetta þýði allt saman? Ætli heimsendir sé í nánd? Ég veit það ekki, en það var svolítið sérstakt að dreyma þetta og muna það svo svona vel eftir á.
Annars er bústaðarbloggið í vinnslu. Það er bara svo mikið að gera í skólanum núna að ég hef ekkert náð að setja myndirnar frá ferðinni inn.

Athugasemdir (