Virkadagsdjammið
Skrifað miðvikud. 14. desember 2005 - 21:10Jamm og já. Þetta var svei mér góður afmælisdagur í gær.
Ég byrjaði daginn á því að vakna seint. Ég fór auðvitað beint í ríkið og auðvitað var ég spurður um skilríki. Ég sýndi þau bara og brosti.
Svo fórum við fjölskyldan út að borða á Hereford. Ég gef þeim stað ekkert sérlega háa einkunn. Frekar léleg þjónusta og svo fékk pabbi eitt seigasta lambaprime sem hann hefur fengið. Ég og mamma fengum samt mjög góðan mat. Eftir það fórum við niður á lögreglustöð til að athuga með símann en þá sagði lögreglan að gaurinn hefði hringt og sagt að vinur sinn væri með símann og að þeir ætluðu að skila honum. Frábærar fréttir, svo hringi ég í gaurinn og hitti hann og fæ símann minn. Ég lofaði honum að málið myndi falla alveg niður og stend ég við það.
Síminn er alveg eins og ég skildi við hann fyrir utan það að það var búið að eyða öllum myndunum á honum. Þetta voru samt ekkert mikilvægar myndir.
Eftir að ég var kominn með símann fór ég í partýið hjá Jökli. Hann á íbúð þannig við erum alltaf þar að djamma, ef við förum ekki niður í bæ. Það var fínt í þessu partýi. Það voru Björg, Jökull, Beta, Guðrún og Tara og svo komu Danni, Óli og Kristín.
Eftir partýið fórum við á Subway og fengum okkur að borða. Svo fóru Jökull og Beta heim og ég og Guðrún fórum heim til mín að sofa.
Svo í dag vaknaði ég kl 2 og þá var Beta komin í klippingu og strípur hjá mömmu. Það er ekkert verið að vekja mann.
Hehe, efast líka um að það sé eitthvað hægt. Allavega, svo fórum við bara í Kringluna og Beta fór að versla sér eitthvað í La Senza. Svo skutluðum við Guggu í vinnuna og erum að fara að ná í hana núna. Svo veit ég ekki meir, kemur bara allt í ljós. 
En ég lenti í svolitlu atviki í Kringlunni sem ég er ekki vanur að lenda í. Ég gleymdi sígarettunum mínum heima og var ekki með pening á mér til að kaupa sígó þannig ég þurfti að betla sígarettur af gömlum konum sem voru á Kringlukránni. Ég spurði: "Fyrirgefið, ekki getið þið nokkuð misst eina sígarettu?" og svarið sem ég fékk til baka var: "Misst hana hvert?". Hehehe, ég sagði: "Nú auðvitað til mín" og brosti. Þær létu mig fá eina og dagurinn bjargaðist.
Ég er að fara að skrifa undir atvinnusamning á morgun kl 1 hjá Securitas. Svo verð ég að kíkja strax eftir það til tannlæknis þar sem endajaxlinn sem tannlæknirinn "tók" um daginn er ekki alveg farinn og er byrjaður að vaxa út á hliðinni, sem er alveg fáránlegt og alveg hrikalega vont!
Hooooojrumst.

Athugasemdir (