Deila á Facebook
« HÁSTAFADAGURINN | Aðalsíða | Smá óhapp »

Sigmund rekinn
Skrifað miðvikud. 22. október 2008 - 21:35
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Hver kannast ekki við skemmtilegu kómísku teikningarnar í Morgunblaðinu? Þær munu því miður ekki líta aftur dagsins ljós, þar sem Sigmund Jóhannsson Baldvinsen, höfundur teikninganna, hefur verið vikið úr starfi fyrirvaralaust eftir 44 ár.

Ein mynd úr safni Sigmunds


Morgunblaðið vildi að Sigmund myndi útfæra teikningarnar í lit, og kvað Sigmund það ekki vera neitt mál, en bað um að fá að hafa þær svarthvítar allavega fram að afmælinu sínu í apríl á næsta ári, en það var bara ekki hægt að sögn Morgunblaðsmanna.

Mér finnst þetta alveg hreint út sagt fáránlegt. Maðurinn er búinn að vinna hjá þeim í 44 ár og búinn að teikna 10.430 myndir fyrir þá og þetta eru þakkirnar.

Morgunblaðið ætti að skammast sín.




Athugasemdir ():