Deila á Facebook
« Virkadagsdjammið | Aðalsíða | Helgin »

Fínn dagur
Skrifað fimmtud. 15. desember 2005 - 20:48
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Já, verð að segja að þetta hafi verið ágætur dagur.

Ég vaknaði kl 12 með Guggu mér við hlið. Það er svoooooooo gott að kúra með henni. *knús*
Ég skellti mér í sturtu og skutlaði henni svo heim út af því að hún var að fara að passa. Ég dreif mig á fund niðri í Securitas. Eftir það fór ég til tannlæknis og svo fór ég upp á Hlölla á höfðanum og fékk mér að borða. Nammi namm, svo dreif ég mig í vinnuna kl hálf 5 og var búinn kl 7. Svo fór ég bara heim og hér er ég kominn.

Ég var að komast að því að yfirmaður minn hjá Securitas væri algjör FM hnakki (að hans sögn). Hann á víst gulan Camaro Z-28 með 350 cid LT1 mótor. *slef*

Ég er að fara á bjórkvöld hjá Borgó á eftir þannig ég er bara að taka mig til núna. Ég tók nokkrar myndir af mér í Securitas outfittinu. Vægast sagt girnilegur *grrrrrr*.

Ég hef allavega ekkert fleira að segja. Ég fer að vinna á morgun frá 14-22 hjá Securitas. Mig er farið að hlakka svolítið til.

Ég heyrði geðveikt lag í gær í útvarpinu og verð bara að deila því með ykkur. Þetta lag er bara flott.

Lag dagsins:
Backstreet Boys - Crawling Back To You




Athugasemdir ():