Helgin - almennilegheit & tölvuvesen
Skrifað þriðjud. 4. nóvember 2008 - 13:20Síðasta laugardag skellti ég mér aðeins á djammið. Ég varð að sjálfsögðu að verðlauna sjálfan mig fyrir að vera svona duglegur að læra á föstudeginum.
Planið var partý hjá Snorra, sem er að vinna með mér á Kránni. Það var bara rosalega gaman þar, en þeir sem voru þarna voru: ég, Grétar, Beta, Snorri, Óli, Steinar og Pétur. Eftir mikla drykkju og skemmtun var bara skellt sér niður í bæ.
Við tókum öll saman stóran leigubíl og fórum niður í bæ. Við byrjuðum á English Pub, sem var ekkert sérlega skemmtilegt. Allt of þröngt!
Ég pantaði mér líka vodka í Magic, en hann átti ekki Magic, þannig hann sleppti því að láta mig vita og setti Cult í staðinn. Ég varð auðvitað frekar pirraður, lét hann vita af því og fékk í staðinn Razz í Sprite. Að reyna eitthvað svona, bara út af því að ég er í glasi.
Eftir þetta var ferðinni heitið á Rex. Þeir voru víst að opna aftur eftir breytingar. Ég sá samt ekki mikla breytingu, fyrir utan það að það var hægt að labba í hring, ásamt því að það var komið reykingapláss. Annars ekkert spes á þeim stað. Ætli þetta verði enn ein Apóteksbólan?
Ég kíkti líka aðeins á Thorvaldsen, en það var ekkert spes þar heldur. Ferðinni var fljótt heitið aftur á Rex, þar sem sumir létu sig hverfa áður en við fórum þangað í fyrra skiptið, en svo fljótlega eftir það var ferðinni heitið yfir á Sólon. Eða ég fór þangað einn eftir að ég fékk ógeð á Rex.
Það var fínt á Sólon. Áki Pain var að spila og allir að fíla sig rosalega við þessa frábæru danstónlist.

En það er eitt sem skar sig rosalega úr frá þessu kvöldi, en það var þegar ég var að dansa á Sólon og einhver gaur rakst í mig sem gerði það að verkum að ég missti glasið mitt. Ég varð frekar pirraður, þar sem ég var nýbúinn að kaupa þennan drykk, þannig ég pikkaði í hann og sagði honum hvað hefði gerst, þ.e. að hann hefði rekist í mig sem hefði látið mig missa glasið.
Hann snýr sér þá við og kemur alveg upp að mér, þannig allir héldu að við værum að fara að slást, en hann spurði bara ákveðið: Var það ég sem rakst í þig? Ég svaraði bara játandi, þar sem ég er ekki vanur að ljúga um eitthvað svona. Þá spyr hann mig hvað ég hafi verið með í glasinu, ég segi honum það og hann segir mér að bíða og vera kyrr á sama stað.
Ég geri það og svo stuttu seinna kemur hann með glasið til mín, sneisafullt af áfengi. Ég þakka honum bara kærlega fyrir, og þá segir hann við mig að þetta eigi einmitt að vera svona.
Ég er alveg sammála því. Svona á þetta að vera, en það versta er að fólk vill oftast ekki viðurkenna það þegar það lendir óvart í því að hella niður drykk einhvers.
Ég var samt alveg gáttaður á viðbrögðum þessa gaurs, sérstaklega þar sem hann leit ekkert út fyrir að vera einhver kærleiksbjörn uppmálaður - ef þið vitið hvað ég á við.
En eftir þetta skelltum við Rakel okkur á Hressó, þar sem við hittum Óla.
Eftir smá dans þarna var ég orðinn svolítið ölvaður, en það stoppaði mig ekki frá því að fá mér skot kl 6, rétt áður en staðnum var lokað. Það voru allsvakaleg mistök!
Eftir lokun á Hressó reyndum við að komast inn á Glaumbar, en það var ekki að fara að gerast, þannig Rakel hringdi í Bigga vin sinn og kom hann og sótti okkur. Ég var að sögn þeirra mjög hress í leigubílnum - eða ekki.
En á sunnudaginn tók við mesta og skelfilegasta þynnka sem ég hef nokkurn tímann upplifað. Ég var allan daginn rúmliggjandi og ælandi. Ekki skemmtilegt.
En hvað segiði? Djamm næstu helgi? Eða ekki. Ég held ég taki mér smá pásu þangað til ég fæ áfengislystina aftur - sem verður ekki strax.
Í gær, á mánudegi, ákvað ég að skella mér með tölvuna mína í viðgerð. Málið var að einhver vifta í tölvunni var orðin rosalega hávaðasöm. Ég hélt það væri örgjörvaviftan þannig ég ætlaði bara að skella mér til Áka félaga míns og kaupa nýja viftu í tölvuna.
Ég fór með turninn til Áka og skildi hann eftir. Bjóst nú við því að þetta yrði lítil aðgerð, en þetta var nú bara allt annað en ég hafði búist við.
Þetta var víst ekki örgjörvaviftan, heldur móðurborðsviftan, og það var víst enginn barnaleikur að skipta um hana. Svo sagðist Áki heyra tikk í harða disknum mínum, sem ég hafði aldrei heyrt áður, þannig líftími hans var alveg á þrotum.
Spáið að lenda í þessu. Þið farið með bílinn ykkar í viðgerð til að herða einhvern bolta og komist að því að það sé gat á olíupönnuninni og að vélin sé alveg að fara. Ekki skemmtilegt, en algjör snilld að komast að þessu áður en orðið var um seinan!
Ég vil bara þakka Áka kærlega fyrir einstaka þjónustu og bara það að hafa reddað þessu öllu fyrir mig. Ég var fáránlega sáttur í gær þegar ég fór og sótti tölvuna til hans, og ennþá sáttari þegar ég setti tölvuna í samband heima og þetta ógeðis hljóð var horfið og vitandi það að ég væri með glænýja móðurborðsviftu og harðan disk.
Algjör snilld. Takk kærlega fyrir, Áki!
En við skulum bara segja þetta ágætt í bili. Orðið aðeins lengra en ég bjóst við.

Ég og Sævar hressir á Sólon - og með pósið á tæru!

Athugasemdir (