Helgin
Skrifað laugard. 17. desember 2005 - 22:35Já, helgin var fjörug. Mikið unnið og mikið djammað.
Á fimmtudeginum fór ég á bjórkvöld með Guggu, Grétari og Töru. Það var drukkið lítið þar sem ég var að fara að vinna á föstudeginum. Ég og Gugga drukkum nokkra bjóra og svo fórum við bara heim til mín að lúlla.
Á föstudeginum kl 2 fór ég að vinna í Kringlunni. Rosa fjör. Svo í vinnunni hitti ég Gumma og Söndru. Þau segja að ég eigi frímiða inn á Zoo Bar sem var að opna í gær. Eftir vinnu fer ég í opnunarpartý á Zoo Bar. Heiðar Austmann að spila live, frír bjór og rosa fjör. Gummi fékk 8 miða gefins með því að hringja upp á útvarpsstöð þegar var verið að gefa þetta. Rosa stuð alveg. Ég skemmti mér frekar illa fyrst en svo þegar ég var byrjaður að drekka þá varð ég hressari með hverjum sopanum. Klukkan 4 var ég orðinn vel fullur og við allir, nema Grétar, sem var á bíl.
Ég man alveg eftir gærkvöldinu. Ég fór á ýmsa staði og hitti m.a. Vigga, Loft, Hödda og helling af fólki. Svo hitti ég auðvitað Guggu. Þegar hún sagði mér að hún væri að keyra á laugarveginum stökk ég út og hljóp ROSALEGA langt og hratt.
Enda var ég alveg búinn á því þegar ég komst inn í bíl til þeirra. Vááá! 
Ég smakkaði besta dekurdrykk í heimi! Hann heitir víst Pina Colada en hann er bland af rommi, kókos- og ananassafa. Og auðvitað má ekki gleyma kirsuberjunum og klökunum! Shiii þetta er góður drykkur. En hann er svolítið dýr.
Þess vegna er þetta bara dekurdrykkur. 
Svo mætti ég klukkan 12 í vinnuna í dag og var alveg til kl 8. Djöfull er tíminn lengi að líða þegar maður er ekki að gera neitt nema að standa og horfa á fólk versla. Ég hélt ég myndi aldrei lifa þetta af. Svo voru auðvitað skórnir að drepa mig þannig þetta var ein löng helför. En já, það var ekkert atvik í dag! Allir voða stilltir fyrir jólin. Enginn að stela og engin vandræði. Yndislegt alveg!
En það eru bara 4 vinnudagar eftir og svo er það Italy baby! Djöfull verður það gaman!!! 
Allavega, stefnan í kvöld er víst djammið. Ég var ekkert þunnur í vinnunni í dag þar sem ég drakk mjög mikið af vatni þegar ég kom heim.
Ég ætla að gera það sama í kvöld. Drekka 4-5 glös af vatni eftir kvöldið. Það svínvirkar! 
En ég hlakka til að fara að djamma! Það er alltaf gaman!
Ég mun taka einhverjar myndir og stefni á að taka fleiri myndir en venjulega. En það er aldrei að vita hvort ég gleymi mér í því að hafa gaman.
Ég færi hér koss til Guggu fyrir allar næturnar sem hún var hjá mér og gærkvöldið. Mamma hennar hélt að hún væri flutt út.
Kiss kiss Gugga mín!
Lag dagsins:
Marcos Hernandez - If You Were Mine

Athugasemdir (