Deila á Facebook
« VR | Aðalsíða | Helgin - Lúdó og Stefán »

ELDUR !!!
Skrifað föstud. 7. nóvember 2008 - 03:23
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Nei, það er ekki kviknað í, heldur er ég bara að ákalla manneskju.

Hvað er Mannanafnanefnd að spá með því að leyfa nafnið "Eldur"? Þetta er alveg fáránlegt með öllu! Fyrir það fyrsta er þetta nú þegar nafnorð í íslenskri orðabók. Í öðru lagi er þetta merki um hættuástand!

Hvað svo þegar móðir Elds er að skamma hann á opinberum vettvangi og öskrar "ELDUR"? Þá hlaupa allir út.

Ég geri mér grein fyrir því að það eru mörg nöfn alveg fáránleg sem Mannanafnanefnd samþykkir, en þetta er bara hreint út sagt heimska.

Fyrst að Eldur er löglegt nafn, þá ætti Sprengja að vera það líka. Maður myndi ekki verða vinsælastur ef krakkinn manns héti Sprengja og maður þyrfti að öskra á hann opinberlega - hvað þá á flugvelli.




Athugasemdir ():